Reyndi að taka við tæpu kílói af kókaíni við hótel

Kókaínið var falið í tveimur niðursuðudósum og ætlað til dreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Ljósmynd/Colourbox

Landsréttur staðfesti í gær 20 mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm yfir Okey Emmanuel Ojidelu fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots og peningaþvætti. Hann reyndi að taka við tæpu kílói af kókaíni við Hótel Frón í Reykjavík.

Lögregla hafði fjarlægt efnið úr ferðatöskunni áður en hann tók við henni.

Landsréttur staðfesti sakfellingu Héraðsdóms Suðurlands í báðum ákæruliðum en mat sönnunargögnin að hluta með öðrum hætti. Héraðsdómur hafði lagt til grundvallar að Ojidelu ætti farsíma sem geymdi samskipti um fíkniefnaviðskipti. Landsréttur taldi ósannað að hann hefði átt símann eða notað hann.

Sagðist hafa átt von á matvælum

Tollverðir fundu 994,57 grömm af kókaíni í ferðatösku konu sem kom til landsins með flugi frá Varsjá 24. mars 2024. Kókaínið var 83% að styrkleika, falið í tveimur niðursuðudósum og ætlað til dreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Í töskunni voru einnig matvæli.

Konan féllst á að vinna með lögreglu. Hún afhenti Ojidelu töskuna við hótelið síðar sama dag eftir að lögregla hafði tekið kókaínið úr henni. Hann var handtekinn skömmu síðar.

Ojidelu sagðist hafa átt von á afrískum matvælum frá vini sínum í Póllandi og að dósirnar hefðu verið ætlaðar öðrum manni sem hann þekkti ekki. Landsréttur taldi skýringar hans ótrúverðugar. Hann hafði gefið misvísandi svör um hvort hann hefði áður hitt konuna og hafði enga skýringu gefið á því hvers vegna samskipti þeirra um afhendinguna fóru fram í gegnum millilið.

Að mati Landsréttar var Ojidelu ljóst að annað og meira væri í húfi en innflutningur matvæla. Hann hefði í öllu falli látið sér í léttu rúmi liggja hvort fíkniefni væru í töskunni, hvers kyns þau væru og í hvaða magni.

Sagði reiðuféð vera laun fyrir óframtalda vinnu

Við húsleit á heimili Ojidelu sama dag fundust 1,74 milljónir króna í reiðufé og lítil grammavog í fataskáp. Í geymslu íbúðarinnar fannst poki með tómum niðursuðudósum. Rétturinn taldi munina gefa vísbendingar um að fíkniefnaviðskipti hefðu verið stunduð á heimilinu.

Ojidelu sagði peningana vera laun fyrir óframtalda vinnu. Landsréttur benti á að fjárhæðin væri í verulegu ósamræmi við uppgefnar tekjur hans og að hann hefði hvorki getað nefnt fyrirtækin sem hann sagðist hafa unnið hjá né nafngreint yfirmenn sína. Rétturinn taldi útilokað að fjárins hefði verið aflað með lögmætum hætti og staðfesti sakfellingu fyrir peningaþvætti og upptöku fjárins.

Gæsluvarðhald sem Ojidelu sætti frá 25. mars til 23. apríl 2024 dregst frá refsingunni. Honum var gert að greiða rúmlega 1,1 milljón króna í áfrýjunarkostnað til viðbótar við tæplega 5,1 milljón króna í sakarkostnað í héraði.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab