Harpa sú fyrsta hjá KA
Knattspyrnukonan Harpa Jóhannsdóttir hefur gert tveggja ára samning við KA og er fyrsti leikmaðurinn sem semur við nýstofnað kvennalið félagsins.
KA mun leika í 2. deild á næsta tímabili eftir að félagið ákvað að slíta samstarfi við Þór í kvennaboltanum.
Markmiðið er að fjölga tækifærum knattspyrnukvenna á Akureyri til að leika með liði í bænum.
Harpa er 28 ára og uppalin hjá KA. Hún hefur leikið fyrir norðan allan sinn feril að undanskildum tíma í bandaríska háskólaboltanum með Seton Hall í New Jersey. Hún á einnig átta leiki með yngri landsliðum Íslands.
Harpa hefur fengið fá tækifæri með Þór/KA undanfarin ár. Í tilkynningu KA er henni lýst sem leiðtoga en hún hefur jafnframt þjálfað yngri flokka félagsins frá unga aldri.
Æfingar nýja liðsins eru hafnar og KA boðar frekari fréttir af leikmannamálum á næstu dögum.
Velkomin heim! 💛💙 #LifiFyrirKA https://t.co/L7Dge85W8N
— KA (@KAakureyri) November 20, 2026
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗