Harpa sú fyrsta hjá KA

Harpa Jóhannsdóttir hefur gert tveggja ára samning við KA.

Harpa Jóhannsdóttir hefur gert tveggja ára samning við KA. Ljósmynd/KA

Knattspyrnukonan Harpa Jóhannsdóttir hefur gert tveggja ára samning við KA og er fyrsti leikmaðurinn sem semur við nýstofnað kvennalið félagsins.

KA mun leika í 2. deild á næsta tímabili eftir að félagið ákvað að slíta samstarfi við Þór í kvennaboltanum.

Markmiðið er að fjölga tækifærum knattspyrnukvenna á Akureyri til að leika með liði í bænum.

Harpa er 28 ára og uppalin hjá KA. Hún hefur leikið fyrir norðan allan sinn feril að undanskildum tíma í bandaríska háskólaboltanum með Seton Hall í New Jersey. Hún á einnig átta leiki með yngri landsliðum Íslands.

Harpa hefur fengið fá tækifæri með Þór/KA undanfarin ár. Í tilkynningu KA er henni lýst sem leiðtoga en hún hefur jafnframt þjálfað yngri flokka félagsins frá unga aldri.

Æfingar nýja liðsins eru hafnar og KA boðar frekari fréttir af leikmannamálum á næstu dögum.

Velkomin heim! 💛💙 #LifiFyrirKA https://t.co/L7Dge85W8N

— KA (@KAakureyri) November 20, 2026

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab