Geta tveir deilt rúmi á fjögurra manna vinnustað?

Vikan var viðburðarík á Smartlandi. Marta María Winkel, fréttastjóri dægurmála mbl.is og höfundur Smartlands Mörtu Maríu, fór yfir fréttir vikunnar og tók saman allt það helsta.

Ásthildur Sturludóttir, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, prýðir forsíðuna.

Ásthildur Sturludóttir, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, prýðir forsíðuna. Ljósmynd/Jóndís Inga Hinriksdóttir

128 síður af skemmtun, fegurð og upplifun

Jólablað Morgunblaðsins kom út í dag en þar er að finna allt sem þú þarft að vita fyrir jólin. Hægt er að lesa blaðið í heild sinni HÉR. 

Margrét Ásgeirsdóttir fjárfestir er búin að selja húsið!

Margrét Ásgeirsdóttir fjárfestir er búin að selja húsið! Samsett mynd

Fylgdi húsið bara með eða? 

Viðskiptakonan og læknirinn, Margrét Ásgeirsdóttir, seldi einstakt einbýlishús sitt og fékk fyrir það 610 milljónir. 

Bára Hildur Jóhannsdóttir og Ástráður Haraldsson eru hætt að vinna saman. mbl.is/Hákon Pálsson

Hætt að vinna saman! 

Bára Hildur Jóhannsdóttir og Ástráður Haraldsson eru hætt að vinna saman eftir að ástin kviknaði á milli þeirra. Á fjögurra manna vinnustað gengur náttúrlega að tveir deili rúmi. 

Mæðgurnar Elma og Manuela Ósk hafa báðar vakið athygli í Tyson-kjól þeirrar síðarnefndu. Samsett mynd

Tyson-kjóllinn er hættur að safna ryki

Manuela Ósk Morthens, áður Harðardóttir, lánaði dóttur sinni Tyson-kjólinn í vikunni og varð það af einni helstu frétt vikunnar. 

Ragnheiður Theodórsdóttir, Sigurlaug Pétursdóttir, Magnea Björg Jónsdóttir og Edda Björk Ragnarsdóttir. mbl.is/Karítas

Garðabæjardrottningar sameinuðust!

Það var ekki þverfótað fyrir smart skvísum þegar Garðabæjardrottningar hittust til að fagna nýju félagi. 

Stærsta partíhelgi ársins er fram undan og því er ráðlagt að ganga hægt um gleðinnar dyr. Þeir sem ætla á jólaskallann ættu að reyna að gæta þess að vakna ekki í fangaklefa. 

Góða helgi! 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab