Jakob Bjarnar kemur fjölmiðlum til varnar: „Ég veit ekki hvort þessari þjóð er hreinlega viðbjargandi“
Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. nóvember 2026 15:18
Jakob Bjarnar Grétarsson. Samsett mynd.
„Enn og aftur eru fjölmiðlar "vondi kallinn" nú í máli sem varðar Hagaskóla og kennara þar sem gátu ekki hamið holdsins lystisemdir á skólatíma. Þeir sem hafa eitthvað um málið að segja keppast við að vilja henda þessum Svarta-Pétri í fréttastofur landsins,“ segir Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður í færslu á Facebook en þar kemur hann fjölmiðlum til varnar vegna umfjöllun þeirra um kossamálið fræga í Hagaskóla.
Vísar hann í viðtal Vísis við Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra sem sagði að betra hefði verið að fjölmiðlar hefðu sleppt því að fjalla um málið þangað til meiri upplýsingar kæmu fram.
Þá vitnar hann einnig í viðtal MBL við Hjördísi Rut Sigurjónsdóttur, verkefnastjóra samskipta hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, sem sagði að fjölmiðlaumfjöllun um málið hefði gengið of langt og vildi frekar fá umfjöllun um skólamálin sem slík.
Jakob segir um það:
„Verkefnastjóri samskipta hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, sem er fyrrverandi blaðamaður, telur fjölmiðlaumfjöllun um máli hafi gengið of langt í fjölmiðlum. Og spyr af hverju þeir fjalli ekki frekar um fjársöfnun barnanna?! Hún verst annars allra frétta. Hvernig væri bara að svara spurningum: Þannig kemur þú í veg fyrir framhaldsfréttir af málinu.“
Hann segir að fjölmiðlar hafi fengið upplýsingar um að allt væri í uppnámi í skólanum og fjalli því auðvitað um málið.
„Og netgárungarnir sem fóru offari voru teknir í bólinu, en þeim datt ekki í hug að meira lægi að baki uppnámi innan skólans en kossaflens. Þeir skammast nú í fjölmiðlum vegna þess að þeir hlupu á sig,“ segir Jakob.
„Ég veit ekki hvort þessari þjóð er hreinlega viðbjargandi þegar kemur að fjölmiðlalæsi, svei mér þá alla daga og dæs, dæs og aftur dæs.“
„Vill þetta fólk heldur að þetta fari um netið eins og eldur í sinu og verði að öðru Lúkasarmáli?“
Nanna Elísa Jakobsdóttir, fyrrum blaðamaður og viðskiptastjóri, tekur undir með honum og segir:
„Nákvæmlega! Það er galið að fylgjast með umræðunni í kringum þetta mál. Það eru ALLIR og amma þeirra að tala um þetta, þess vegna eru fjölmiðlar að fjalla um þetta, samfélaginu þykir þetta greinilega fréttnæmt. Af því að þetta er það,“ segir hún.
„En starfsmaður Reykjavíkurborgar mætir til leiks með eitthvað sassy comment um að fjölmiðlar ættu nú að sýna góðgerðardegi Hagaskóla meiri áhuga - það er notabene fjallað um þennan dag á hverju einasta ári í fjölmiðlum þrátt fyrir að fólk hafi takmarkaðan áhuga - ömurlegt komment og glatað að sjá starfmann á launum hjá borgarbúum hnýta í fjölmiðla með svona ómaklegum hætti í staðinn fyrir að vinna vinnuna sína. Það þarf sárlega að efla fjölmiðla-og hreinlega samfélagslæsi landans.“
Svaraði þá Jakob:
„Allir og amma þeirra og myndskeið komin á flot. Vill þetta fólk heldur að þetta fari um netið eins og eldur í sinu og verði að öðru Lúkasarmáli?“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗