Arnrún María og Bergið headspace fá viðurkenningu Barnaheilla 2026
Barnaheill veittu í dag árlega viðurkenningu sína fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra. Þetta er í 25. sinn sem samtökin heiðra með þessum hætti einstaklinga eða félagasamtök sem hafa unnið óeigingjarnt starf til að bæta líf barna og verja réttindi þeirra hér á landi.
Á hverju ári leita Barnaheill til almennings eftir tilnefningum og í ár barst metfjöldi eða 46 tilnefningar alls. Því var ákveðið að veita tveimur verkefnum viðurkenningu í dag, á Degi mannréttinda barna.
Það er okkur sönn ánægja að heiðra Arnrúnu Maríu Magnúsdóttir leikskólakennara og Bergið headspace með viðurkenningu Barnaheilla 2026, fyrir ómetanlegt starf í þágu barna og elju þeirra við að bæta samfélagið börnum í hag.
„Fræðsla, samskipti og samkennd skipta meira máli nú en nokkru sinni fyrr. Forvarnir, ráðgjöf og stuðningur við þolendur eru mikilvæg skref í baráttunni við ofbeldi gegn börnum, og þar höfum við hjá Barnaheillum lagt helstu áherslur í starfi okkar hér innanlands síðustu ár,“ sagði Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, formaður Barnaheilla á viðurkenningarathöfninni í dag.
Indriði Nökkvi Þóreyjarson, formaður Ungheilla, þakkaði viðurkenningarhöfunum fyrir störf sín, enda væru þær forvarnir og sú ráðgjöf sem þau veita börnum og ungmennum gríðarlega mikilvæg fyrir samfélagið en ekki síst réttindabaráttu barna. „Forvarnir eru eitthvað sem við gerum alls ekki nóg af. Forvarnir virka, en bönn ekki,“ sagði Indriði. „Bergið veitir fínustu ráðgjöf að mér best skilst og það er eitthvað sem við megum ekki vanmeta. Rödd ungmenna verður að heyrast í samfélaginu.”
Um viðurkenningarhafa
Arnrún María Magnúsdóttir er leikskólakennari, stofnandi Samtalsins fræðsla ekki hræðsla og höfundur Lausnahringsins. Hún hefur starfað með börnum og fjölskyldum frá árinu 1992 og leggur áherslu á að forvarnir hefjist snemma í lífi ungra barna, með daglegum samskiptum.
Lausnahringurinn varð til í leikskólastarfi með börnum og byggir á sjö einföldum lausnum sem börn og fullorðnir geta æft saman. Markmiðið er að hjálpa börnum að setja og virða mörk, takast á við ágreining og sýna umhyggju. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna og hugmyndafræði Jákvæðs aga eru mikilvæg leiðarljós í starfi Öddu. Með fræðslu og verklegri leiðsögn styður hún starfsfólk skóla og foreldra við að vera fyrirmyndir og skapa börnum tækifæri til að æfa uppbyggileg samskipti.
Bergið headspace – Fyrir ungt fólk á forsendum ungs fólks
Bergið headspace veitir ungu fólki á aldrinum 12–25 ára ókeypis, faglega og aðgengilega ráðgjöf við hvers kyns áskorunum lífsins. Hjá Berginu þarf hvorki tilvísun né greiningu til að fá stuðning og engin vandamál eru of lítil til að ræða þau.
Markmið Bergsins er að skapa öruggt rými þar sem ungt fólk fær hlustun, stuðning og tækifæri til að takast á við áskoranir á eigin forsendum. Þjónustan byggir á snemmtækum stuðningi, valdeflingu og þeirri trú að öll ungmenni eigi rétt á aðgengilegri geðheilbrigðisþjónustu þegar þau þurfa á henni að halda.
Árið 2025 leituðu 1.096 ungmenni til Bergsins og voru veitt 4.617 ráðgjafarviðtöl og árið í ár verður enn stærra. Bergið hefur vaxið hratt á undanförnum árum og býður nú þjónustu á tíu stöðum víða um land, auk fjarviðtala.
Einkunnarorð Bergsins eru: Fyrir ungt fólk á forsendum ungs fólks.
Dagur mannréttinda barna og Barnasáttmáli SÞ
Með viðurkenningunni í dag vilja Barnaheill einnig vekja athygli á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og mikilvægi þess að standa vörð um réttindi og velferð barna. Hinn 20. nóvember er helgaður Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og mannréttindum barna um allan heim, því einmitt þann dag árið 1989 var Barnasáttmálinn samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Barnasáttmálinn á sér þó mun lengri sögu og hefur verið leiðarljós alþjóðasamtaka Barnaheilla - Save the Children frá stofnun þeirra 1919.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗