Mourinho tekur af allan vafa
Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, vill ekki missa brasilíska framherjann Endrick í janúarglugganum þrátt fyrir að leikmaðurinn hafi fengið fá tækifæri á tímabilinu.
Endrick, sem er tvítugur, hefur aðeins spilað 141 mínútu fyrir Real Madrid á tímabilinu. Hann vill fá meiri spilatíma og hefur meðal annars verið orðaður við AC Milan og Arsenal.
Mourinho hefur hins vegar tekið skýrt fram að hann vilji halda Endrick hjá félaginu og telur hann eiga bjarta framtíð í Madríd.
„Ég treysti Endrick. Hann mun ná árangri hér. Félögin sem hafa áhuga á honum þurfa að berjast við mig til að fá hann,“ sagði Mourinho.
Endrick var á láni hjá Lyon á síðustu leiktíð en er samningsbundinn Real Madrid til ársins 2030.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗