Fyrrum MAGA-þingkona segir Trump hafa sagt sér hvers vegna það mætti ekki birta Epstein-skjölin

Pressan

Föstudaginn 20. nóvember 2026 15:30

Marjorie Taylor Greene. Mynd/Getty

Fyrrum þingkonan Marjorie Taylor Greene segir að áður en hún sneri baki við Donald Trump Bandaríkjaforseta og MAGA-hreyfingunni hafi forsetinn útskýrt fyrir henni hvers vegna það mætti ekki birta Epstein-skjölin alræmdu.

Greene sagði í myndbandi sem hún birti á X í gær með fyrirsögninni: „Sannleikanum er haldið frá ykkur, hér er það sem gerðist“

„Donald Trump er sá sem kom í veg fyrir birtingu Epstein-skjalanna. Ég veit ekki hversu oft ég þarf að útskýra þetta en ég get fullyrt þetta því ég var þarna og talaði sjálf við forsetann um málið.“

Þingkonan fyrrverandi sneri meðal annars baki við forsetanum yfir Epstein-málinu en hún segir í myndbandi sínu að sögusagnir um að fyrrum yfirmaður starfsliðs Hvíta hússins, Susie Wiles, hafi komið í veg fyrir birtingu skjalanna eigi ekki við rök að styðjast.

„Hann múlbatt alla og sagði: Þessi skjöl má ekki birta,“ sagði Greene og bætti við að Wiles hefði aðeins miðlað fyrirmælum forsetans. Greene segir að forsetinn hafi óttast að birting skjalanna myndi valda „vinum hans“ í golfklúbbnum tjóni.

„Hann sagði mér hvers vegna símleiðis. Hann sagði mér að það væri út af vinum hans – hann sagði: „Fólk sem þú þekkir, Marjorie í Mar-a-Lago, mun verða fyrir tjóni.“ Það er allt og sumt. Þess vegna var barist svona harkalega gegn birtingu Epstein-skjalanna, því forseti Bandaríkjanna vildi ekki að þau birtust. Og vitið þið hvað? Þau hafa enn ekki verið birt að fullu. Og það er enn barist fyrir því að skjölin verði birt, með nöfn þolenda afmáð. Nöfnin þarf að afmá og það er mikilvægt.“

Greene segir að nöfn rúmlega þúsund kvenna sé að finna í skjölunum. Sumar þeirra hafi orðið fyrir kynferðisbrotum þegar þær voru 14 og 16 ára gamlar.

„Svo ég ítreka það enn og aftur: Birtið Epstein-skjölin.“

You’re not being told the truth, here is what happened. 🚨 https://t.co/fktkSpBDBT

— Marjorie Taylor Greene 🇺🇸 (@mtgreenee) November 19, 2026

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab