75% minni lúsameðhöndlun í djúpeldi
Í rannsókn norsku hafrannsóknastofunarinnar er sýnt hvernig fiskarnir þurfa að geta fyllt sundmagann. Þess vegna er loftrými í kvínni sem sökkt er í djúpeldinu. Teikningu gerði Stein Mortensen og myndir tóku Frode Oppedal og Brede Fannemel. Ljósmynd/Havforskningsinstitutted
Ný norsk rannsókn sýnir að við djúpeldi á regnbogasilungi var hægt að draga úr meðferð gegn laxalús um nálægt 75% í samanburði við hefðbundið sjókvíaeldi.
Í nýrri umfjöllun SalmonBusiness kemur fram að leiða hafi átt í ljós í rannsókninni hvort djúpeldi, sem þegar er í notkun í laxeldi, geti líka hentað við eldi á regnbogasilungi.
Tilraun Havforskningsinstituted fór fram hjá Hofseth Aqua í Noregi og framvindan borin saman við söguleg gögn hjá fyrirtækinu.
Kaldur sjór hamlar vexti
Þá kom í ljós að í djúpeldinu fór fyrsta meðferð við laxalús fram fimm mánuðum síðar en í hefðbundnu eldi og þörfin fyrir meðferð var líka minni þannig að tíðni aðgerða var fjórðungur af því sem gerist í hefðbundnum sjókvíum.
Rannsóknin leiddi líka í ljós óhagræði því sjórinn er kaldari á meira dýpi og það hamlar vaxtarhraða fiskanna.
Þá hafi truflanir á súrefnisgjöf leitt til meiðsla á trjónu fiskanna þegar þeir nudduðu sér upp við loftkúpu sökktu sjókvíarinnar.
„Í sökktum sjókvíum eru sérstakar loftkúpur neðansjávar sem gera fiskinum kleift að fylla sundmagann af lofti án þess að þurfa að synda upp að yfirborði sjávar, þar sem laxalúsin er yfirleitt í mestum mæli,“ segir í umfjöllun SalmonBusiness.
Aðstæður aðrar í Noregi en hér
Dúpeldi á sér nokkra sögu í Noregi, en þar eru firðir mun dýpri en almennt gerist hér á landi og aðstæður til slíks eldis því betri en hér á landi þar sem þessi tækni hefur ekki náð fótfestu.
Í eldinu er notast við sérútbúnar kvíar sem eru lokaðar að ofan svo að fiskurinn syndi ekki ofar en á 20 metra dýpi.
Fram kom í Lagarlífi 200 mílna í haust að pokinn í kvínni væri 30 metra langur og sæti 20 metra undir sjávarmáli.
Djúpeldiskvíar þurfa því að vera á stað þar sem 50 til 70 metrar eru niður á botninn.
„Íslenskir firðir eru ekki jafndjúpir og þeir norsku, en þó má finna nokkra staði þar sem þessi lausn ætti að henta,“ sagði Kristinn Guðbrandsson, tæknistjóri fiskeldisþjónustu Egersund, í viðtali við blaðið.
Áhugasamir um rannsókn Norsku hafrannsóknastofnunarinnar geta nálgast niðurstöður hennar HÉR.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
