Taka við umboði VDL og sýna nýjustu kynslóð á morgun
Thomas Már Gregers og Friðrik Friðriksson frá Véltindum ásamt Siebren de Boer frá VDL við nýja VDL Futura 3-hópferðabílinn í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Eindhoven á dögunum. Ljósmynd/Aðsend
Véltindar hafa tekið við umboði fyrir hópferðabíla hollenska framleiðandans VDL Bus Group á Íslandi. Af því tilefni verður nýjasta kynslóð VDL Futura, sem nefnist Futura 3, til sýnis hjá fyrirtækinu í Hafnarfirði á morgun, laugardag.
VDL-hópferðabílar hafa um árabil verið notaðir í íslenskri ferðaþjónustu, meðal annars í hópferðum, flugvallarakstri og áætlunarakstri.
Futura 3 var kynntur á Busworld Europe-sýningunni í Brussel á síðasta ári, þar sem hann hlaut verðlaun fyrir hönnun í flokki hópferðabíla.
Allt að 15% minni eldsneytisnotkun
Við hönnun nýja bílsins var lögð áhersla á aukin þægindi farþega og bætta vinnuaðstöðu ökumanns. Farþegarýmið er rúmbetra og aðgengi um báðar dyr hefur verið bætt. Þá er ökumannsrýmið endurhannað og búið nýjustu akstursaðstoðarkerfum.
Að sögn framleiðandans er eldsneytisnotkun Futura 3 allt að 15% minni en hjá fyrri kynslóð og viðhald hefur jafnframt verið einfaldað.
„VDL hefur lengi verið þekkt fyrir vandaða og áreiðanlega hópferðabíla sem standast íslenskar aðstæður,“ segir Thomas Már Gregers, forstöðumaður Véltinda, í tilkynningu.
Hann segir að með nýja bílnum geti rekstraraðilar boðið farþegum aukin þægindi og um leið lækkað rekstrarkostnað. Ekki megi heldur gleyma vinnuaðstöðu ökumanna, sem eyði löngum dögum undir stýri.
„Vinnuaðstaðan, sætið og allt ökumannsrýmið er einstaklega vel útfært. Það þarf eiginlega að setjast inn og upplifa það af eigin raun, og við hvetjum bílstjóra sérstaklega til að koma og máta.“
Til sýnis í Hafnarfirði
VDL Futura 3 verður til sýnis hjá Véltindum að Stálhellu 4 í Hafnarfirði á morgun, laugardaginn 21. nóvember, milli klukkan 12 og 15.
Á sýningunni verða einnig helstu atvinnubílar Iveco og hópferðabíll frá King Long. Véltindar fara jafnframt með umboð fyrir Rosero og Forveda 4x4.
Gestum verður boðið upp á kaffi og léttar veitingar.
内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗