Liverpool-klúbburinn ekki lengur heimilislaus
Liverpoolklúbburinn á Íslandi hefur valið Catalinu í Kópavogi sem nýjan samkomustað félagsmanna. Fyrsti leikurinn sem klúbburinn kemur saman til að horfa á þar verður heimaleikur gegn Manchester United á sunnudag.
Í tilkynningu klúbbsins kemur fram að stjórnin hafi skoðað ýmsa staði á höfuðborgarsvæðinu undanfarna viku. Metnaður nýrra eigenda Catalinu og vilji þeirra til samstarfs hafi ráðið miklu um valið.
Eigendur hafa hafið endurbætur á staðnum og stefna að því að gera hann að íþróttabar. Snorri Victor, fyrrverandi yfirmatreiðslumaður á VOX og gullverðlaunahafi með kokkalandsliðinu, er meðal eigenda og mun sjá um matinn.
Á sunnudaginn verður boðið upp á spurningaleik með vinningum og Erna Hrönn syngur meðal annars You’ll Never Walk Alone fyrir leik.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗