Munar tugum króna á lítra

Afsláttarkjör draga úr verðmuninum, en eftir sem áður munar 17 til 21 kr. á lítra á algengasta verði eftir afslátt og lægsta verði félaganna fjögurra. Ljósmynd/Colourbox

Munurinn á lægsta og algengasta bensínverði Atlantsolíu, N1, Orkunnar og ÓB nam 29 til 31 kr. á lítra hinn 17. nóvember.

Þetta sýna niðurstöður úttektar ASÍ en í tilkynningu frá sambandinu segir að lægsta verð þessara félaga hafi verið í boði á 38 stöðvum, þeim sömu og fyrir ári.

Að stöð Costco meðtalinni voru 39 af 245 bensínstöðvum landsins í lægsta verðflokki samanburðarins, eða 16%. Hlutfallið var um þriðjungur á höfuðborgarsvæðinu en 8% utan þess.

Á þeim 38 stöðvum þar sem Atlantsolía, N1, Orkan og ÓB buðu lægsta verð kostaði lítrinn 251,0 til 251,6 kr. Algengasta verð þessara félaga var hins vegar 280,0 til 282,4 kr. Verðmunurinn innan sama félags nam því um 1.450 til 1.550 kr. við kaup á 50 lítrum.

Afsláttarkjör draga úr muninum

Afsláttarkjör draga úr verðmuninum, en eftir sem áður munar 17 til 21 kr. á lítra á algengasta verði eftir afslátt og lægsta verði félaganna fjögurra. Hjá Orkunni var algengasta verðið til dæmis 280 kr. á lítra. Með 12 kr. afslætti varð það 268 kr., samanborið við 251 kr. á ódýrustu stöðvum félagsins. Á stöðvum félaganna fjögurra með lægsta verð fæst enginn viðbótarafsláttur.

Hjá Olís voru fjögur verðþrep, frá 272,7 til 281,6 kr. á lítra fyrir afslátt. Algengasta verðið var 281,6 kr., eða 8,9 kr. hærra en lægsta verð félagsins. Stöðvar Olís falla þó ekki í lægsta verðflokk samanburðarins.

Hjá Costco kostaði bensínlítrinn 237,1 kr., en þar þarf aðild til að kaupa eldsneyti.

Lægsta yfirleitt á höfuðborgarsvæðinu

Á höfuðborgarsvæðinu voru 25 af 76 stöðvum í lægsta verðflokki samanburðarins, að Costco meðtöldu. Utan höfuðborgarsvæðisins voru þær 14 af 169 og voru allar á Akureyri, í Borgarnesi, á Selfossi eða á Laugarbakka.

Á 25 öðrum stöðvum var skráð verð lægra en algengasta verð viðkomandi félags. Þær voru allar utan höfuðborgarsvæðisins.

Á hinum stöðvunum, 181 talsins, var verðið jafnhátt algengasta verði félagsins eða hærra. Hlutföllin miðast við fjölda stöðva og segja því ekki til um hversu stór hluti bensíns er seldur á hverju verði.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab