Liverpool-klúbburinn ekki lengur heimilislaus

Liverpool á mikinn fjölda stuðningsmanna hér á landi.

Liverpool á mikinn fjölda stuðningsmanna hér á landi. AFP/Darren Staples

Liverpoolklúbburinn á Íslandi hefur valið Catalinu í Kópavogi sem nýjan samkomustað félagsmanna. Fyrsti leikurinn sem klúbburinn kemur saman til að horfa á þar verður heimaleikur gegn Manchester United á sunnudag.

Í tilkynningu klúbbsins kemur fram að stjórnin hafi skoðað ýmsa staði á höfuðborgarsvæðinu undanfarna viku. Metnaður nýrra eigenda Catalinu og vilji þeirra til samstarfs hafi ráðið miklu um valið.

Eigendur hafa hafið endurbætur á staðnum og stefna að því að gera hann að íþróttabar. Snorri Victor, fyrrverandi yfirmatreiðslumaður á VOX og gullverðlaunahafi með kokkalandsliðinu, er meðal eigenda og mun sjá um matinn.

Á sunnudaginn verður boðið upp á spurningaleik með vinningum og Erna Hrönn syngur meðal annars You’ll Never Walk Alone fyrir leik.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab