Mörg tonn fylgja kokkalandsliðinu á HM

Íslenska kokkalandsliðið ferðast með viðkvæm hráefni í frystikössum en bílar og búnaður fara sjóleiðina til keppninnar. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska kokkalandsliðið hélt í gær til Lúxemborgar þar sem það tekur þátt í heimsmeistaramótinu í matreiðslu, Culinary World Cup. Mikill farangur fylgdi hópnum, eins og sjá má á myndum frá brottförinni sem liðið hefur nú birt á Facebook.

Eftir margra mánaða undirbúning steig hópurinn um borð í rútu frá Snæland Grímssyni sem flutti hann til Keflavíkur.

„Ferðalagið á heimsmeistaramótið í matreiðslu hófst fyrir mörgum mánuðum,“ segir í færslu liðsins. Þar er brottförinni lýst sem stórum áfanga og segir að með henni hafi ferðalagið að lokamarkmiðinu hafist fyrir alvöru.

Ísak Aron Jóhannsson, fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins, á Keflavíkurflugvelli fyrir brottför til Lúxemborgar. Ljósmynd/Aðsend

„Við ætlum að fara alla leið“

Samkvæmt Þóri Erlingssyni, framkvæmdastjóra íslenska kokkalandsliðsins, nemur heildarflutningur vegna þátttökunnar mörgum tonnum þegar búnaður, hráefni, farangur og bílar eru talin með. Bílar og búnaður fara sjóleiðina en viðkvæm hráefni fylgja liðinu í frystikössum, þar á meðal íslenskt lambakjöt og fiskur.

„Við ætlum að fara alla leið. Það er bara svoleiðis,“ segir Þórir í samtali við mbl.is.

Wiktor Pálsson hefur umsjón með eftirréttum kokkalandsliðsins á heimsmeistaramótinu.

Wiktor Pálsson hefur umsjón með eftirréttum kokkalandsliðsins á heimsmeistaramótinu. Ljósmynd/Aðsend

Elda fyrir 110 gesti á morgun

Fyrri keppnisdagur íslenska liðsins er á morgun, laugardaginn 21. nóvember. Þá keppir það í greininni Restaurant of Nations, þar sem verkefnið er að framreiða þriggja rétta máltíð fyrir 110 gesti. Þriðjudaginn 24. nóvember tekur síðan við keppni í Chef’s Table.

Eins og áður hefur komið fram á mbl.is stendur stór hópur að baki þátttökunni. Keppendur, þjálfarar og aðstoðarfólk hafa lagt mikla vinnu í æfingar og þróun keppnisrétta. Þá hafa bakhjarlar og samstarfsfyrirtæki stutt verkefnið með meðal annars fjárframlögum, hráefni, búnaði og sérfræðiþekkingu.

Hægt verður að fylgjast með ferðalaginu og keppninni á Instagram-reikningi Kokkalandsliðs Íslands.

Þórir Erlingsson, framkvæmdastjóri kokkalandsliðsins, hefur í mörgu að snúast þegar haldið er á heimsmeistaramót. Ljósmynd/Aðsend

Brottförin markaði stóran áfanga eftir margra mánaða æfingar og undirbúning.

Brottförin markaði stóran áfanga eftir margra mánaða æfingar og undirbúning. Ljósmynd/Aðsend

Íslenski hópurinn hélt til Lúxemborgar í gær, þar sem kokkalandsliðið keppir á heimsmeistaramótinu í matreiðslu. Ljósmynd/Aðsend

Flutningar og skipulag eru stór hluti af undirbúningi kokkalandsliðsins fyrir heimsmeistaramótið. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab