Vill bera saman fundi ráðherra með stjórnum ríkisfyrirtækja

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eyþór

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vill fá fram hversu oft fjármála- og efnahagsráðherra og starfsmenn ráðuneytisins funduðu með stjórnum eða stjórnarformönnum fimm ríkisfyrirtækja á árunum 2021 til 2026.

Hann óskar eftir skriflegu svari þar sem fundafjöldinn er sundurliðaður eftir árum. 

Fyrirspurnin var birt á vef Alþingis í gær og nær til Landsvirkjunar, Landsnets, Rarik, Íslandspósts og Isavia.

Sigurður Ingi spyr sérstaklega um fundi með stjórnarformanni einum og fundi þar sem stjórnin sat ásamt formanni.

Hann vill einnig fá að vita hvort fyrirtækin hafi skriflegar verklagsreglur um góða stjórnarhætti og hvaða regluverk stjórnirnar styðjist við til að tryggja sjálfstæði sitt ef slíkar reglur eru ekki til.

Landsnetsdeilan rædd án forstjórans

Fyrirspurnin kemur í kjölfar umræðu um fundi fjármálaráðherra með stjórn Landsvirkjunar í aðdraganda starfsloka Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins.

mbl.is greindi frá því 2. nóvember að Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefði rætt ágreining Landsvirkjunar og Landsnets við stjórn Landsvirkjunar á fundi 6. janúar. Hvorki Hörður né staðgengill hans sátu fundinn, samkvæmt fundargerð ráðuneytisins. 

Einnig hefur verið deilt um fyrirhugaðan fund með Herði sem aldrei varð af.

Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, sagði í svari við fyrirspurn mbl.is að ráðuneytið hefði lagt til að þeim fundi yrði frestað og að fyrst yrði haldinn upplýsingafundur með stjórninni.

Daði hefur sagt að um tvo aðskilda fundi hafi verið að ræða. 

Sagðist hafa fundað með öllum stjórnum ríkisfyrirtækjanna

Í svari við fyrirspurn Sigríðar Á. Andersen, þingmanns Miðflokksins, á Alþingi 9. nóvember vísaði Daði til þess að starfsreglur stjórnar Landsvirkjunar gerðu ráð fyrir fundum hennar með ráðherra. Hann sagðist jafnframt hafa fundað með öllum stjórnum ríkisfyrirtækjanna. 

Sigríður óskaði eftir að tölvupóstar og fundargerðir yrðu lögð fram.

Daði sagði að öll gögn ráðuneytisins um málið yrðu lögð fram. Hann kvaðst þá ekki geta fullyrt hvort einnig væri hægt að afhenda fundargerðir og gögn um innri samskipti Landsvirkjunar. 

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab