Tíminn að renna út í viðræðum um „drápsvélmenni“
Hernaður tekur nú miklum breytingum þar sem herir leitast við að nýta gervigreind til að bera kennsl á skotmörk og gera árásir hraðar og af meiri nákvæmni. Ljósmynd/Colourbox
Tíminn var að renna út á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Genf í dag þar sem ríki freistuðu þess að ná samkomulagi um að hefja formlegar samningaviðræður um sjálfvirk banvæn vopn, svonefnd „drápsvélmenni“.
Umræður höfðu staðið í fimm daga og höfðu Rússar öðrum fremur tafið fyrir framgangi málsins.
Til stóð að ljúka endurskoðunarráðstefnu samnings Sameinuðu þjóðanna um tiltekin hefðbundin vopn (CCW) í kvöld. Þegar komið var fram á síðdegi leituðu ríkin enn leiða út úr pattstöðunni.
Hernaður tekur nú miklum breytingum þar sem herir leitast við að nýta gervigreind til að bera kennsl á skotmörk og gera árásir hraðar og af meiri nákvæmni.
Varað hefur verið við því að fela sjálfvirkum vopnum vald til að ráða lífi og dauða. Ríkin 128 sem eiga aðild að samningnum hafa í vikunni reynt að komast að niðurstöðu um hvort hefja eigi formlegar viðræður um reglur um notkun slíkra vopna. Verði af viðræðunum þarf einnig að ákveða hvert umboð þeirra verði og hve lengi þær eigi að standa.
Deila um bindandi reglur og tímaramma
Samstaða þarf að nást um allar ákvarðanir ráðstefnunnar. Meirihluti ríkjanna vill lagalega bindandi samkomulag en ríki sem búa yfir tækninni, þar á meðal Bandaríkin og Rússland, eru treg til að gangast undir slíkar takmarkanir.
Alþjóðaráð Rauða krossins og ýmis frjáls félagasamtök vilja að samningaviðræðunum ljúki innan árs. Bandaríkjastjórn hefur lagt til að þær standi í fimm ár.
„Á lokadegi ráðstefnunnar heldur minnihluti ríkja áfram að standa í vegi fyrir framgangi málsins,“ sagði Anna Hehir, sem stýrir starfi Future of Life Institute að reglum um hernaðarnotkun gervigreindar.
„Haldi þau því áfram verða ríkin í meirihluta að ákveða hvernig þau ætla að koma á reglum um vopn sem nýta gervigreind.“
Sum ríki, þar á meðal Frakkland, reyna að afla stuðnings við leið sem felur bæði í sér lagalega bindandi ákvæði og óbindandi ráðstafanir.
Rússar mótmæltu þátttöku áheyrnarfulltrúa
Þegar sjálfvirk banvæn vopnakerfi (e. lethal autonomous weapons systems, LAWS) hafa verið virkjuð geta þau valið skotmörk og ráðist á þau án frekari aðkomu manna. Að sögn Stop Killer Robots, alþjóðlegs bandalags meira en 300 samtaka, hafa slík kerfi þegar verið prófuð eða tekin í notkun, meðal annars í stríðinu í Úkraínu.
Við upphaf ráðstefnunnar í byrjun vikunnar mótmæltu Rússar því að áheyrnarfulltrúar, meðal annars frá Evrópusambandinu og félagasamtökum, fengju að taka þátt í umræðunum. Ríkin þurftu í kjölfarið að halda umræðunum áfram með óformlegum hætti.
Rússar tóku einnig ítrekað til máls í gær og kröfðust breytinga á orðalagi í drögum að lokaskýrslu ráðstefnunnar, meðal annars í köflum sem vörðuðu önnur atriði en helstu álitamálin.
Einn stjórnarerindreki, sem ræddi við AFP undir nafnleynd, sagði þó að dregið hefði saman með ríkjunum í vikunni.
„Við erum mjög nálægt því að ná samstöðu um að hefja þurfi einhvers konar samningaviðræður. Aðeins ein sendinefnd beitir sér gegn því að málið fari í þann farveg.“
Líkt við upphaf kjarnorkuvopnaaldar
Magnus Lovold hjá góðgerðarsjóðnum Lex International sagði að með tilkomu sjálfvirkra banvænna vopna væri heimurinn að nálgast „Oppenheimer-stund“. Þar vísaði hann til eðlisfræðingsins Roberts Oppenheimers, sem átti lykilþátt í þróun fyrstu kjarnavopnanna.
„Við erum komin á þann stað að héðan í frá gæti orðið mun erfiðara að koma á þeim reglum sem við þurfum,“ sagði Lovold í tengslum við ráðstefnuna í Genf.
Áhyggjur hafa vaknað af því að slíkum vopnum verði beitt til árása án þess að greint sé á milli hernaðarlegra skotmarka og óbreyttra borgara. Spurningar hafa einnig vaknað um hver beri ábyrgð á árásum og hvort beiting vopnanna samræmist reglum hernaðar.
„Grípið til aðgerða til að koma í veg fyrir notkun og útbreiðslu þessara miskunnarlausu vopna,“ sagði António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, við upphaf ráðstefnunnar.
„Við megum aldrei láta af því að verja óbreytta borgara fyrir blóðsúthellingum og eyðileggingu í vopnuðum átökum og koma í veg fyrir óþarfa þjáningar.“
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗