Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Viðreisn eins og nýsköpunarfyrirtæki sem vex mjög hratt

Það er mikill munur á því annars vegar hvernig Jón Gnarr kvaddi þingflokk Viðreisnar og hins vegar hvernig Ingvar Þóroddsson kvaddi. Jón kom og ræddi við þingmenn og þingflokkinn og styður mál ríkisstjórnarinnar á meðan Ingvar einfaldlega sagði sig úr Signal hópi þingflokks Viðreisnar og gekk í Sjálfstæðisflokkinn. Stuðningsfólki Viðreisnar í Norðaustur þykir eðlilega vont að missa þingsæti sem margir unnu ötullega að því að tryggja. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, er viðmælandi Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Það er ekki hjá því komist að úr því ég fæ tækifæri til þess að spyrja þig út í stöðuna í Viðreisn. Það hafa verið sviptingar í Viðreisn. Jón Gnarr starfar núna sem óháður þingmaður þó hann sé í samstarfi við Viðreisn og styðji ríkisstjórnina. En svo í þessari viku þá urðu tíðindi, sem mér skilst að hafi reyndar mallað undir dálítið lengi, þegar Ingvar Þóroddsson gengur í Sjálfstæðisflokkinn. Hvað er í gangi? Mér finnst það svo stórt stökk í dag að fara beint úr Viðreisn yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Hvað er að gerast?

„Já, það er vissulega rétt hjá þér að það er nokkuð stórt stökk þegar Sjálfstæðisflokkurinn lagði sig í líma við að slá Íslandsmet í málþófi varðandi veiðigjöldin. Talandi um veiðigjöldin, það er nákvæmlega mál sem undirstrikar af hverju Viðreisn er svona mikilvægt afl fyrir íslenskan almenning í dag, fyrir almannahagsmuni og hefur hugrekki til þess að setja á dagskrá mál sem raunverulega skipta almannahagsmuni máli. Og Ingvar stóð sig vel í því, var með okkur í því meðan að núna flokksfélagar hans voru eindregið á móti, bara alfarið á móti öllu því sem við gerðum þar og það sama með, eins og ég segi, eitt stærsta almannahagsmunamál sem ríkisstjórn og stjórnmálaflokkur eins og Viðreisn hefur lagt fyrir þjóðina, það var þjóðaratkvæðagreiðslan.

Hún fór eins og hún fór og við virðum niðurstöðuna en það er samt 105 þúsund manns sem segja að þeir hefðu viljað sjá samning og ég hitti mann um daginn sem var mjög svekktur. Sjálfstæðismaður reyndar, hefur kosið Sjálfstæðisflokkinn, hann var gríðarlega svekktur yfir þessari niðurstöðu af því hann sagði við mig: Það er búið að dæma börnin mín sem voru að kaupa núna 70 milljóna króna íbúð. Í staðinn fyrir að þegar er búið að fullgreiða og borga kannski 100 milljónir í tótal, þá er búið að segja við börnin mín sem voru að kaupa þessa íbúð: Þið þurfið að borga 200 milljónir. Um þetta meðal annars snerist þetta stóra mál, af hverju við vildum láta reyna á þessa almannahagsmuni. En niðurstaðan var þessi og við vinnum út frá henni og treystum böndin við Evrópu með öðrum hætti, ekki síst í gegnum EES-samninginn.

Varðandi Viðreisn, já, þeir fara svolítið á ólíkum forsendum og mér fannst mikill bragur að því hvernig Jón þó gerði þetta. Hann kom og kvaddi okkur í þingflokknum, ræddi við okkur og hefur kosið með ríkisstjórninni, ríkisstjórnarmálum, síðan hann fór meðan Ingvar einfaldlega sagði sig úr Signal-grúppunni og það voru skilaboð, það var ekki frekar sagt við þingmenn sem hafa sérstaklega unnið mikið með honum, landsbyggðarþingmenn og aðrir, sem hafa unnið með honum að efla hagsmunagæsluna, meðal annars fyrir Norðausturkjördæmi.

Þannig að það er svolítið ólíku saman að jafna en um leið þá lítum við inn á við og við þurfum að skoða og það er meðal annars núna sem strategíuhópurinn svonefndi sem er að vinna. En við þurfum að skoða líka inn á við, bæði ferla og það hvernig við getum skerpt á bæði skipulagi og það að hvernig við setjum málin okkar fram, svo eitthvað sé nefnt. Ég fékk örkynningu á þessu í gær og ég er mjög ánægð með þessar niðurstöður. Þær eru mjög hjálplegar. Uppbyggileg gagnrýni sem kemur þar, þar fram, en ég hef líkt Viðreisn svolítið, við erum tíu ára flokkur. Og ég vitna í mann sem er innan Viðreisnar, mikið af fólki úr nýsköpunargeiranum sem er innan Viðreisnar og atvinnulífinu, og hann sagði sérstaklega: Þorgerður, þetta minnir á nýsköpunarfyrirtæki. Það vex mjög hratt og ferlarnir innan fyrirtækisins ná ekki að halda í við vöxtinn og það er svolítið það sem við stöndum frammi fyrir. Það var gríðarleg fjölgun í byrjun árs með yfir 50% fjölgun félagsmanna þegar öll prófkjörin fóru af stað í sveitarstjórnum og við buðum fram á tólf stöðum og náðum glæsilegum árangri, aldrei haft jafn marga kjörna fulltrúa um land allt.

Þannig að ég er mjög stolt af því en um leið þarf að tryggja betur synkið á milli til að mynda sveitarstjórnarfulltrúa og kjörinna fulltrúa á þinginu, tryggja það að raddir bæði landsbyggðanna, en líka hér á suðvesturhorninu, séu meðvitaðar um þá ábyrgð sem fylgir því að vera í pólitík og tala fyrir frjálslynt afl sem setur almannahagsmuni í forgrunn. Og þetta er bara verkefni okkar sem erum í forystu flokksins og þá er ég ekki bara að tala um ritara, formann og varaformann heldur stjórn flokksins og alla kjörna fulltrúa.

Þannig að mér finnst þetta vera svolítið spennandi tímar fram undan og ég fundaði strax á mánudagskvöldið, ásamt varaformanni, honum Daða, með Norðausturráði. Það var mjög góður fundur. Ýmislegt sem kom þar og var mjög gagnlegt en maður fann náttúrlega það sem var erfitt fyrir þau er að þau hafa misst núna kjörna fulltrúa sinn sem hefur verið tengiliður við þingflokk og ríkisstjórn.“

Mér finnst alveg grundvallarmunur á stöðu Jóns Gnarr annars vegar og stöðu Ingvars hins vegar vegna þess að atkvæði greidd Viðreisn í síðustu kosningum voru atkvæði sem voru greidd gegn Sjálfstæðisflokknum, gegn þeirri ríkisstjórn, gegn því sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir þannig að mér finnst þetta alveg ótrúleg svik við kjósendur. Kjósendur Viðreisnar voru ekkert að kjósa Ingvar Þóroddsson til að sitja á Alþingi, burt séð frá því fyrir hvaða stefnu og hvaða flokk hann situr.

„Þú ert nú svo sem ekki fyrsti maðurinn sem að segir þetta og ekki annar og ekki tíundi og ekki tuttugasti sem segir þetta við mig á síðustu dögum og sérstaklega einmitt kjósendur í Norðausturkjördæmi sáu það að Viðreisn fór fram undir slagorðinu „Breytum þessu“. Þetta var ekki slagorð til þess að segja að við ætlum að viðhalda kyrrstöðustefnu Sjálfstæðisflokksins í svo mörgum málum, í efnahagsmálunum, í virkjanamálum, í, einmitt orkuöflun eða gera ekki neitt í hjúkrunarrýmum, gera ekki neitt fyrir eldri borgara og öryrkja.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab