Tómas Hrafn metinn hæfastur

Tómas Hrafn Sveinsson.

Tómas Hrafn Sveinsson. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara telur Tómas Hrafn Sveinsson hæfastan til að gegna hvoru tveggja dómaraembættanna sem auglýst voru í september.

Þóra Hallgrímsdóttir, settur dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, stendur honum næst að mati nefndarinnar.

Nefndin hefur skilað umsögn sinni til dómsmálaráðherra. Annars vegar verður skipað í embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Hins vegar verður dómari settur við sama dómstól til og með 31. ágúst 2029, samkvæmt umsögninni og tilkynningu ráðuneytisins frá 25. september.

Sex sóttu um embættin.

Sýndu mesta færni við að semja dóma

Tómas Hrafn og Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður voru jöfn og fremst í samanburði nefndarinnar á menntun, starfsreynslu og öðrum þáttum starfshæfni. Þóra fylgdi þeim fast á eftir.

Í þeim samanburði vógu reynsla af dómstörfum, reynsla af lögmanns- og málflutningsstörfum og reynsla af stjórnsýslustörfum þyngst og hafði hver þáttur jafnt vægi.

Tómas Hrafn og Þóra sýndu mesta færni við að semja dóma að mati nefndarinnar. Hún taldi úrlausnir þeirra skýrar og niðurstöður um sönnun og lagaatriði studdar traustum rökum. Þegar nefndin lagði heildarmat á starfsferil umsækjenda og færni þeirra við að semja dóma varð niðurstaðan sú að Tómas Hrafn stæði fremst og Þóra honum næst.

Starfað við barnavernd og háskólakennslu

Tómas Hrafn er formaður umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur og aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands. Hann starfaði áður sem lögmaður, var varaformaður kærunefndar útlendingamála og var skipaður varadómandi í Endurupptökudómi árið 2025.

Þóra hefur verið settur dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur frá 1. ágúst. Hún starfaði áður við lagadeild Háskólans í Reykjavík, þar sem hún kenndi einkum fjármunarétt. Hún var formaður úrskurðarnefndar í vátryggingamálum frá 2013 til 2024.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab