Hefur bara selt fimm eintök af GTA
Eigandi tölvuleikjaverslunar í Leicester á Englandi segist aðeins hafa selt fimm eintök af stórleiknum Grand Theft Auto 6, þrátt fyrir gríðarlega eftirvæntingu eftir útgáfu hans. Ástæðan sé sú að leikurinn kom eingöngu út á stafrænu formi.
GTA 6 kom út á fimmtudag eftir 13 ára bið. Leikurinn hefur þegar slegið met, en á fyrsta sólarhringnum hefur hann selst í 24,5 milljónum eintaka.
Richard Tewksbury, eigandi verslunarinnar Super Game Shack, segir söluna hins vegar hafa valdið miklum vonbrigðum.
„Fólk er gríðarlega spennt fyrir þessum leik og salan er þegar komin á fullt, en það hefur ekki skilað sér til okkar,“ segir hann við BBC.
Alls hefur hann selt fjögur eintök fyrir PlayStation 5 og eitt fyrir Xbox.
Enginn vill kóða í kassa
Leikjaframleiðandinn Rockstar Games ákvað að gefa leikinn ekki út á hefðbundnum diskum. Þess í stað innihalda eintök sem seld eru í verslunum aðeins kóða til að hlaða leiknum niður.
Tewksbury segir að fáir hafi áhuga á slíku fyrirkomulagi og að ákvörðunin hafi komið illa niður á minni verslunum.
Hann telur jafnframt að stafrænar útgáfur verði sífellt algengari. Sony hefur þegar tilkynnt að PlayStation-leikir verði ekki lengur gefnir út á diskum frá janúar 2028.
Óttast lokun fleiri verslana
Ákvörðunin hefur einnig vakið óánægju meðal tölvuleikjaáhugamanna.
Rob Spence, sem safnar tölvuleikjum á áþreifanlegu formi, segir mikilvægt að geta haldið á leikjunum og safnað þeim í hillur.
Hann óttast að þróunin leiði til þess að fleiri sjálfstæðar tölvuleikjaverslanir loki á næstu árum.
Að hans mati snúist málið ekki eingöngu um sölu tölvuleikja heldur einnig um samfélagið sem myndast í kringum verslanirnar.
Hann bendir á að útgáfukvöld, þegar áhugamenn komu saman til að kaupa nýjustu leikina á miðnætti, gætu brátt heyrt sögunni til.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗