Stefan frá Keflavík til Breiðabliks
Knattspyrnumaðurinn Stefan Alexander Ljubicic hefur gert samning við Breiðablik og gengur til liðs við bikarmeistarana frá Keflavík um áramótin. Félagið tilkynnti um samninginn á samfélagsmiðlum.
Stefan er 27 ára og hefur leikið með Keflavík undanfarin tvö tímabil. Hann skoraði tuttugu mörk á Íslandsmótinu á þeim tíma, þar af tólf á nýliðnu tímabili.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Breiðabliks, kvaðst ánægður með að fá Stefan til liðsins.
„Hann býr yfir mörgum eiginleikum sem munu nýtast liðinu. Hann hefur verið frábær hjá Keflavík en ég held að hann eigi samt sem áður mikið inni og á von á að sjá það brjótast út í Breiðablikstreyjunni,“ sagði Jökull í tilkynningunni.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/40/1694049.jpg)