„Þetta getur ekki gengið svona“
Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, segir að draga verði lærdóm af þeim langa undirbúningstíma sem tók að koma Suðurnesjalínu 2 í gagnið. Samsett mynd/mbl.is/Árni Sæberg
Suðurnesjalína 2 verður spennusett í dag við athöfn í Reykjanesbæ og þar með tilbúin til notkunar.
Línan styrkir grunn að daglegu lífi, atvinnuuppbyggingu, verðmætasköpun og orkuskiptum á Suðurnesjum, segir í tilkynningu Landsnets í tilefni þessa.
Undirbúningur Suðurnesjalínu 2 hefur tekið langan tíma, en hann hefur staðið yfir frá árinu 2005. Deilur hafa staðið yfir á milli Landsnets og landeigenda þar sem línan fer um og hafa þær ratað fyrir dómstóla.
Það var ekki fyrr en í maí sl. sem Hæstiréttur kvað upp endanlegan dóm í málinu sem greiddi leiðina.
„Þessi langi undirbúningstími er eitthvað sem við verðum að draga lærdóm af, bæði við hjá Landsneti en einnig opinberir aðilar og fleiri, því þetta getur ekki gengið svona. Við verðum að vera sammála um hvað eru mikilvægir samfélagslegir innviðir.
Ef við erum sammála um að svo sé, þá verðum við að finna leið til að geta byggt þá upp með fljótari hætti en reyndin hefur verið í sumum framkvæmdum,“ segir Ragna Árnadóttir í samtali við mbl.is sem fagnar því að línan sé nú loks komin í gagnið.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗