Karlar eru líklegri en konur til að vera fátækir á Íslandi - „Fátt er jafn mikill gæðastimpill á samfélag og að sem fæstir líði skort“
Um 34 þúsund manns eða 8,5 prósent landsmanna eru undir lágtekjumörkum samkvæmt nýrri greiningu Hagstofunnar á lífskjörum, karlar eru líklegri en konur til að vera undir lágtekjumörkum.
Til að reikna lágtekjumörk er miðað við að ráðstöfunartekjur heimilisins séu undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna í landinu. Á árunum 2021–2026 var hlutfall einstaklinga undir þessum lágtekjumörkum á bilinu 7,4% til 9,0%, lægst árið 2023 og hæst árið 2022.
Árið 2026 var lágtekjuhlutfall 9,8% á meðal karla og 7,2% á meðal kvenna.
Öll árin 2021–2026 var lágtekjuhlutfall hærra á meðal einstaklinga í leiguhúsnæði en meðal einstaklinga í eigin húsnæði. Árið 2026 voru 23,2% einstaklinga í leiguhúsnæði undir lágtekjumörkum samanborið við 4,2% einstaklinga í eigin húsnæði.
Alls bjuggu 13,1% barna á heimilum undir lágtekjumörkum samanborið við 8,5% landsmanna í heild. Meðal einstaklinga með erlendan bakgrunn var lágtekjuhlutfallið 16,7% árið 2026 samanborið við 5,5% meðal þeirra sem eru með innlendan bakgrunn.
Mikill tekjujöfnuður á Íslandi
Þá segir í annarri tilkynningu á vef Hagstofunnar að Gini-stuðullinn hafi mælst 23,6 árið 2026, er þá einnig notast við niðurstöður lífskjararannsóknar Hagstofunnar.
Gini-stuðullinn er mælikvarði á tekjujöfnuð í samfélaginu og væri 0 ef allir einstaklingar hefðu jafnar tekjur en 100 ef einn einstaklingur hefði allar tekjurnar.
Á árunum 2021–2026 var Gini-stuðullinn á bilinu 22,2 til 23,6, lægstur árið 2023 og hæstur árið 2026.
Þar segir að félagsleg aðstoð til heimila dragi úr ójöfnuði og er Gini-stuðullinn því hærri þegar hann er reiknaður án félagslegrar aðstoðar. Á árunum 2021–2026 var Gini-stuðullinn án félagslegrar aðstoðar lægstur árið 2023, eða 28,3, og hæstur árin 2021 og 2026, eða 30,4 og 30,1. Með félagslegri aðstoð er átt við greiðslur á borð við fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna, barnabætur, húsnæðisbætur, atvinnuleysisbætur og örorkubætur. Ellilífeyrir og eftirlifendabætur teljast ekki til félagslegrar aðstoðar.
Þónokkrir hafa tjáð sig um þessa niðurstöðu, þar á meðal hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson sem segir:
„Fátt er jafn mikill gæðastimpill á samfélag og að sem fæstir líði skort.“
Í þessu samhengi var Hagstofan að birta nýtt mat á Gini-stuðli fyrir Ísland. Sá er mælikvarði á tekjuójöfnuð og jafngildir hærri tala meiri ójöfnuði. Skemmst frá því að segja að Ísland skorar lægst (s.s. er með mestan jöfnuð) allra Evrópulanda á þennan kvarða. https://t.co/Vyhr8WfkSq
— Jón Bjarki (@JBentsson) November 20, 2026
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗