Frumsýna nýjan Mercedes-Benz GLA á morgun

Nýr GLA var endurhannaður frá grunni.

Nýr GLA var endurhannaður frá grunni. Ljósmynd/Aðsend

Nýr Mercedes-Benz GLA verður frumsýndur hjá bílaumboðinu Öskju á morgun, laugardag. Bíllinn hefur verið endurhannaður frá grunni og kemur nú í fyrsta sinn á markað sem hreinn rafbíll.

Nýr GLA verður meðal annars fáanlegur með fjórhjóladrifi og allt að 643 kílómetra drægni samkvæmt WLTP-mælingum.

Bíllinn er búinn 800 volta rafkerfi og getur tekið við allt að 320 kW hleðsluafli á DC-hraðhleðslustöðvum. Við bestu aðstæður er þannig hægt að bæta við drægni sem nemur allt að 270 kílómetrum á aðeins tíu mínútum.

Innanrýmið var einnig endurhannað.

Innanrýmið var einnig endurhannað. Ljósmynd/Aðsend

Rúmbetri og tæknivæddari

Ný kynslóð GLA er rúmbetri en sú fyrri. Farangursrýmið er 410 lítrar en að auki er 107 lítra geymslurými undir framhúddinu. Með aftursætin niðri eykst farangursrýmið í allt að 1.400 lítra.

Innanrýmið hefur jafnframt verið endurhannað og er bíllinn búinn nýju MB.OS-stýrikerfi Mercedes-Benz og nýjustu kynslóð MBUX-upplýsinga- og afþreyingarkerfisins. Þar er meðal annars stuðst við gervigreind til að auðvelda samskipti ökumanns við bílinn.

Eigendur geta einnig nýtt Mercedes-Benz-smáforritið til að fylgjast með hleðslustöðu, stilla hitastig í bílnum og nálgast ýmsa stafræna þjónustu, að því er segir í tilkynningu.

Verð frá 9,5 milljónum

Frumsýningin verður haldin á morgun, laugardaginn 21. nóvember, milli klukkan 12 og 16, hjá Öskju að Krókhálsi 11 í Reykjavík og að Njarðarbraut 11 í Reykjanesbæ.

Forsala er þegar hafin og byrjar verð á nýjum GLA í 9.490.000 krónum.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab