Hló aðspurð hvort fjarveran væri skilaboð
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hló góðlátlega aðspurð hvort fjarvera hennar á fundi Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka atvinnulífsins á miðvikudag hefði falið í sér skilaboð til ferðamannaiðnaðar á Íslandi.
„Það er það svo sannarlega ekki,“ segir hún í samtali við mbl.is að ríkisstjórnarfundi loknum í morgun.
Þá sagði hún að ófyrirséðar breytingar á dagskrá hennar hefðu valdið fjarverunni en athygli vakti að Hanna hefði afboðað komu sína á fundinn vegna utanlandsferðar en hefði í rauninni verið stödd á Alþingi að mæla fyrir frumvarpi sínu um náttúru- og innviðagjald.
Átti að vera í Dyflinni
Fundurinn var sá síðasti í fundarröðinni Mótvindur og var meðal annars varpað fram þeirri hugmynd að stjórnvöld væru helsta hindrun ferðaþjónustu á Íslandi.
„Mér var boðið á þennan fund og ég þurfti að afþakka það boð vegna þess að það var fyrirhugað að ég væri í Dublin á Írlandi á ráðherrafundi og á tvíhliða fundum með ráðherra þessa daga,“ segir Hanna Katrín.
Hafi síðan komið á daginn að forseti Alþingis setti frumvarp Hönnu um fyrirhugað náttúru- og innviðagjald á dagskrá sama dag og fundurinn átti sér stað og hún því fært fyrirhugaða ferð sína um einn dag til að vera viðstödd fyrstu umræðu frumvarpsins.
Þá bætir hún við að Pawel Bartoszek þingflokksformaður Viðreisnar hafi farið á fundinn í hennar stað.
„Svona fer þetta bara stundum í miklum önnum.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗