Miklar sveiflur á gengi Anthropic

Anthropic Dario Amodei, forstjóri Anthropic. Bréf félagsins voru tekin til viðskipta í kauphöll Nasdaq í New York í gær. Gengið hefur mikið sveiflast síðan. AFP/Charly Triballeau

Gengi gervigreindarfyrirtækisins Anthropic hefur tekið dýfu í viðskiptum fyrir opnun markaða á öðrum viðskiptadegi með hlutabréf fyrirtækisins. Kemur þetta í kjölfar hækkunar á fyrsta degi viðskipta með bréfin, en virði þeirra er enn yfir útboðsgengi sínu.

Mikil eftirspurn var eftir hlutabréfum í félaginu í útboði þess fyrr í vikunni. Var útboðsverðið að lokum ákveðið 83 dalir á hlut, en miðað við það var verðmat Anthropic 1,5 billjónir dala (e. trillion). Það er 1.500.000.000.000 dalir eða um 187.500.000.000.000 krónur. Til að setja það í eitthvað raunverulegt samhengi sem íslenskir lesendur þekkja jafngildir þetta um tæplega 38 faldri landsframleiðslu Íslands á síðasta ári, en hún var 4.956 milljarðar, eða 4,96 trilljónir króna.

Í gær, þegar bréf félagsins voru tekin til viðskipta, hækkaði gengi þeirra hratt og fór upp í 111,5 dali á hlut stuttu fyrir hádegi. Jafngildir það um 34% hækkun frá útboðsgenginu.

Virði þeirra tók hins vegar að falla seinni partinn og endaði við dagslok í 97,17 dölum, enn 17% yfir útboðsgenginu.

Í viðskiptum fyrir opnun markaða í dag er gengi bréfanna metið á 88,44 dali, eða um 9% lægra verð en við lokun í gær. Gengi þeirra er þó enn 6,5% yfir útboðsgenginu.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab