Þessar pítsur koma skemmtilega á óvart

Blómkálspítsa Hönnu Þóru G. Thordarson með fíkjum, osti, tómötum og klettasalati. Ljósmynd/Aðsend

Blómkál, ostur og egg eru uppistaðan í þessum pítsabotnum Hönnu Þóru G. Thordarson, uppskriftahöfundar, myndlistarkonu og leirlistarkonu. Hanna heldur úti síðunni hanna.is, þar sem finna má fjölbreyttar hugmyndir að mat og bakstri.

Hún rakst á uppskriftina í erlendu tímariti og ákvað að prófa. Útkoman kom skemmtilega á óvart og pítsurnar fengu góðar viðtökur á heimilinu.

Lykillinn að botnunum er að kreista vökvann vel úr blómkálinu áður en því er blandað saman við önnur hráefni. Botnarnir eru síðan forbakaðir og látnir kólna áður en álegginu er bætt við. Þar má fara eftir eigin smekk, hvort sem valið fellur á salami og mozzarella eða geitaost og fíkjur.

Blómkálspítsur að hætti Hönnu

Botnarnir eru forbakaðir áður en áleggi að eigin vali er bætt við og pítsurnar bakaðar áfram. Ljósmynd/Aðsend

Tvær pizzur, fyrir tvo.

Pítsabotnar

  • 500–600 g ferskt blómkál
  • 1 tsk. gróft salt
  • 1 dl rifinn ostur
  • 1 msk. trefjahýði, psyllium husk, má sleppa
  • 1 egg
  • 1 tsk. óreganó
  • 1 tsk. ítölsk kryddblanda
  • Svartur pipar
  • 1 msk. olía til penslunar, má sleppa

Hugmyndir að áleggi

Veljið saman eftir smekk.

  • 1–1½ dl pítsusósa
  • Rifinn ostur
  • Mozzarellaostur, skorinn í sneiðar
  • Salamísneiðar
  • Kapris
  • Grænt pestó
  • Rjómaostur eða geitaostur
  • Fíkjur, skornar í sneiðar, sérstaklega góðar með geitaosti.

Eftir bakstur, ef vill

  • Litlir ferskir tómatar
  • Rifinn parmesanostur
  • Klettasalat

Aðferð

  1. Saxið blómkálið mjög smátt í matvinnsluvél.
  2. Blandið saltinu saman við og látið standa í 10 mínútur. Setjið blómkálið í fínt sigti, sigtipoka eða grisju og kreistið vökvann vel úr svo botnarnir verði ekki of blautir.
  3. Hitið ofninn í 225 °C.
  4. Blandið blómkálinu saman við rifinn ost, trefjahýði ef það er notað, egg, óreganó, ítalska kryddblöndu og svartan pipar.
  5. Leggið tvo bökunarpappíra á vinnuborð og penslið með olíu ef vill. Skiptið blöndunni í tvennt og mótið tvo pizzubotna. Notið fingurna eða kökukefli og leggið bökunarpappír yfir blönduna á meðan hún er flött út svo hún klístrist síður.
  6. Bakið botnana í um 15 mínútur og látið þá kólna.
  7. Setjið sósu og valið álegg á botnana. Bakið áfram í 9–11 mínútur. Hanna mælir með að baka pítsurnar á grind svo vel lofti undir þær.
  8. Bætið ferskum tómötum, parmesanosti eða klettasalati yfir eftir bakstur, ef vill.

Pítsurnar eru bestar nýbakaðar en einnig má hita þær upp daginn eftir.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab