Rannsaka meinta hópnauðgun við töku kvikmyndar

Samkvæmt umfjöllun miðilsins sakar hún Depardieu um nauðgun og Houellebecq um hlutdeild í henni. AFP

Frönsk yfirvöld rannsaka meinta hópnauðgun við tökur á kvikmyndinni Thalasso í desember 2018.

Leikarinn Gérard Depardieu og rithöfundurinn Michel Houellebecq eru báðir nefndir í kæru vegna málsins, að því er tveir heimildarmenn sem fylgjast með rannsókninni greindu AFP frá í dag.

Franski rannsóknarmiðillinn Mediapart greindi frá því í gær að leikkona hefði lagt fram kæru í maí 2025.

Samkvæmt umfjöllun miðilsins sakar hún Depardieu um nauðgun og Houellebecq um hlutdeild í henni og kynferðisbrot. 

Depardieu og Houellebecq fara báðir með aðalhlutverk í Thalasso, þar sem þeir leika persónur sem byggðar eru á þeim sjálfum.

Leikstjórinn Guillaume Nicloux hefur einnig verið sakaður um hlutdeild í meintu broti. Nicloux, sem tók upp atriðið, sagðist í samtali við Mediapart ekki hafa orðið var við að leikkonan væri þvinguð. Hann kvaðst síðar hafa beðið hana afsökunar. 

Leikstjórinn Guillaume Nicloux, leikarinn Gerard Depardieu og rithöfundurinn Michel Houellebecq.

Leikstjórinn Guillaume Nicloux, leikarinn Gerard Depardieu og rithöfundurinn Michel Houellebecq. AFP

Dró áfrýjun til baka í vikunni

Depardieu dró í vikunni til baka áfrýjun á dómi sem féll í maí 2025. Hann var þá dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur konum við tökur á annarri kvikmynd, Les Volets verts, árið 2021. Dómurinn er endanlegur eftir að hann féll frá áfrýjuninni. 

Depardieu hefur jafnframt kært ákvörðun um að rétta yfir honum í sérstöku máli vegna ásakana leikkonunnar Charlotte Arnould um nauðgun og kynferðisbrot árið 2018.

Hann neitar sök í því máli. Búist er við niðurstöðu um hvort málið fari fyrir dóm 26. nóvember. 

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab