Steldu bronsuðu útliti Zendayu
Aðventan er á næsta leiti og ótalmörg tilefni til að hressa upp á andlitið. Leikkonan Zendaya er augljóslega komin í hátíðarskap og var mjög fallega máluð í Hollywood á dögunum þar sem kopar, brons og gylling einkenndu förðunina. Förðun sem þessa er auðvelt að leika eftir og hentar vel næstu vikur.
Zendaya er með dökkbrún augu og ólífulita húð og því klæða þessir litir hana einstaklega vel. Kopar- og bronstónar fara ekki síður þeim vel sem eru með græn, blá eða hnetubrún augu. Hlýir málmlitir draga fram náttúrulegan augnlit og gefa augnförðuninni fallega dýpt og ljóma. Undir augunum er gylltur augnskuggi sem gerir förðunina fágaðri. Í tilfelli leikkonunnar er hún með brúntóna varablýant og gloss yfir. Það útlit er einstaklega vinsælt núna.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





