„Þetta er mjög fáguð árás“

„Við hvetjum aðila, mikilvæga aðila og aðra, til að tilkynna til okkar ef þeir verða varir við eitthvað slíkt eða þjónusturof sem gæti verið afleitt af þessu,“ segir Magni R. Sigurðsson, forstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS. Samsett mynd

Tölvuárásin á íslenska vefhýsingarfyrirtækið 1984 ehf. er mjög fáguð og gervigreind augljóslega nýtt til að kortleggja infrastrúktúrinn, að mati Magna R. Sigurðssonar, forstjóra netöryggissveitarinnar CERT-IS.

1984 stöðvaði í dag alla þjónustu sína tímabundið í kjölfar árásarinnar. Fyrirtækið hyggst koma tölvupósti og nafnaþjónustu aftur í gang fljótlega en óvíst er hvenær önnur þjónusta verður endurheimt.

Magni segir 1984 mikilvægan innvið sem sé hluti af þjónustuhóp CERT-IS. Það hafi tilkynnt um árásina um leið og hún uppgötvaðist.

Fylgst með öðrum mikilvægum innviðum

„Við erum fyrst og fremst að aðstoða þá við greiningu og fá upplýsingar frá þeim um hvað árásaraðilinn er búinn að gera þarna inni og við förum þá í dýpri greiningar og skoðum hvaða aðgerða þarf að grípa til,“ segir hann.

„En síðan erum við með augun opin fyrir öðrum mikilvægum innviðum og fyrirtækjum og stofnunum hér á landi. Bæði hvað varðar afleidd áhrif af þessu þjónusturofi hjá þeim, 1984, og hvort að þessi ógnaraðili sé að skoða önnur fyrirtæki eða stofnanir hér á landi.“

Hann geti ekkert gefið upp um ógnaraðilann að svo stöddu en CERT-IS hafi fundið ákveðnar vísbendingar sem verið sé að rekja.

„Þetta er mjög fáguð árás og gervigreind nýtt mjög augljóslega til að kortleggja infrastrúktúrinn og annað,“ segir hann.

„Við hvetjum aðila, mikilvæga aðila og aðra, til að tilkynna til okkar ef þeir verða varir við eitthvað slíkt eða þjónusturof sem gæti verið afleitt af þessu.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab