Fjölskyldan fagnar: Enginn hafi leitað á líklegum stað
Elías Pétursson, segir fjölskylduna fagna því að bærinn vilji skapa aðstæður til leitar. Samsett mynd
Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar sem lést við störf í Hópahverfi í Grindavík í janúar 2024, segir jákvætt að bærinn sé opinn fyrir því að haga sprunguviðgerðunum þannig að hægt verði að leita að líkamsleifum Lúðvíks.
„Þetta er fagnaðarefni og við vonum svo sannarlega að þetta verði vel gert og að allt verði gert sem í mannlegu valdi stendur til að klára verkefnið. Reynslan hefur hins vegar kennt okkur að um leið og við erum ánægð, þá stillum við öllum væntingum í hóf. Við vonum bara að allir geri sitt allra besta og verði í góðum samskiptum við fjölskylduna,“ segir Elías.
Fóru ekki niður að þjöppunni
Elías hefur stúderað sprunguna sem Lúðvík féll í á sínum tíma og segist sannfærður eftir að hafa skoðað gögn frá síðustu leit í lok október um að hann sé að finna á stað þar sem ekki hefur verið leitað.
Jarðvegsþjappan sést hér á um 13 metra dýpi. Tilgátan er sú að jarðneskar leifar Lúðvíks liggi neðar í malarbing.
„Það hefur ekki verið leitað þar. Þegar sprungan opnaðist fór Lúlli niður með efninu. Þjappan á eftir honum fór einnig niður. Það eru líkur á því að hann liggi í efninu fyrir neðan þjöppuna. Þar hefur ekkert verið leitað. Það er á um 14 metra dýpi í sprungunni en t.a.m. í leitinni sem farin var um daginn, þar sem sigmenn fóru niður, var einungis gerð sjónleit á um það bil 10 metra dýpi og fjölskyldan telur að sú leit hafi verið hálfgert sjónarspil,“ segir Elías.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
