HIV Ísland vilja afglæpavæða vændi – „Hefur neikvæð áhrif á heilsu beggja hópa“

Kristinn H. Guðnason

Föstudaginn 20. nóvember 2026 13:30

Svavar G. Jónsson formaður HIV Ísland.

Samtökin HIV Ísland eru á móti frumvarpi dómsmálaráðherra um harðari refsingar í vændismálum. Samtökin vilja afglæpavæða vændi og segja refsingar hafa slæm áhrif á heilsu kaupenda og seljenda.

Samkvæmt nýju frumvarpi Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra verða refsingar fyrir vændiskaup hert. Meðal annars sleppi kaupendur ekki við fangelsisdóm með því að greiða sektir eins og nú.

Slæm áhrif á heilsu

Í umsögn HIV Íslands er bent á að árið 2021 hafi aðildarríki Sameinuðu þjóðanna samþykkt markmið um að útrýma alnæmi sem lýðheilsuógn fyrir árið 2030. Ísland hafi skuldbundið sig við þetta markmið.

Sjá einnig:

Jakob Bjarnar gagnrýnir áform um nafnbirtingu vændiskaupenda – „Þarna ræður heift og einsýni femínista“

„Því er ekki hægt að ná með aukinni glæpavæðingu í þessum málaflokki,“ segir í umsögn Svavars G. Jónssonar formanns og er vísað í skýrslu UNAIDS2 frá árinu 2024 þar sem kemur fram að glæpavæðing hafi slæm heilsufarsleg vandamál á bæði kaupendur og seljendur vændis sem og samfélagsins alls.

Þora ekki að fara til læknis

„Kynlífsverkafólk og þolendur vændismansals eru meðal hópa sem kallaðir eru “lykil samfélög” (e. key populations) í baráttunni gegn alnæmi og ber yfirvöldum að gæta þeirra heilsu og öryggi sérstaklega,“ segir í umsögninni. Sé því mælt með fullri afglæpavæðingu frekar en harðari refsiramma.

„Seljendur úr alls konar aðstæðum koma til okkar til þess að nálgast hraðpróf og andlegan stuðning frekar enn að sækja hefðbundnari læknisþjónustu eða aðstoð lögreglu vegna hræðslu við refsingu og vanskilning, sem er raunveruleg ógn fyrir innflytjendur og þolendur vændismansals sérstaklega,“ segir í umsögninni.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab