Léttist um 15 kg í króatísku fangelsi og deildi 8-9 fm klefa með sjö mönnum

Ágúst Borgþór Sverrisson

Föstudaginn 20. nóvember 2026 13:30

Landsréttur. Mynd: DV/KSJ

Króati sem situr í fangelsi hér á landi reyndi að komast undan framsali til Króatíu á grundvelli þess að þar biði hans fangelsisvist sem uppfyllti ekki kröfur um mannúðlega meðferð. 

Í lok júlí síðasta sumar var gefin út evrópsk handtökuskipun á hendu rmanninum af héraðsdómstóli í Króatíu, þess efnis að hann ætti að ljúka afplánun dóms þar sem hann hafði afplánað að hluta. Hafði hann verið sakfelldur í dómsmáli í mars árið 2025, „fyrir öflun, flutning og sölu á verulegu magni skotvopna og skotfærum milli nokkurra landa í hagnaðarskyni í félagi við nafngreinda samverkamenn í skipulagðri glæpastarfsemi. Með dómnum var honum ákvörðuð tveggja ára og tíu mánaða fangelsisrefsing, þar af eitt ár og fimm mánuðir óskilorðsbundnir og eitt ár og fimm mánuðir skilorðsbundnir til fimm ára. Í handtökuskipuninni er óskað eftir fullnustu óskilorðsbundna hlutans, eins árs og fimm mánaða, að frádreginni gæsluvarðhaldsvist hans frá 14. júní 2018 til 14. mars 2019. Eftirstöðvar refsingarinnar nemi átta mánuðum í fangelsi.“

Maðurinn situr í fangelsi hér á landi núna og afplánar fjögurra og hálfs árs refsingu fyrir fíkniefnalagabrot. Ríkissaksóknari krafðist afhendingar mannsins til yfirvalda í Króatíu og stefnt er að flutningi hans í febrúar á næsta ári. 

Maðurinn mótmælti kröfu lögreglustjóra, aðallega á grundvelli aðbúnaðar í króatískum fangelsum, sem hann lýsti sem mjög slæmum. Er hann afplánaði þar síðast hafi hann deilt 8-9 fm fangaklefa með sjö öðrum mönnum. Þar hafi verið salerni í miðju með litlum vegg í kringum. Eitt lítið borð hafi verið til að matast við og engin aðstoð inn í klefann. Tveir tímar hafi verið til útivistar yfir daginn og engin aðstaða til hreyfingar. Sturtuleyfi hefði verið tvisvar í viku og fangar hafi mátt hringja í fimmtán mínútur einu sinni í viku. Þetta hafi verið 2018. Hann hefði hins vegar heyrt að aðstæður í dag væru miklu verri. Hann hafi lést um 15 kg á þessum tíma.

Ríkissaksóknari fullyrti hins vegar að embættið hefði verið fullvissað, eftir samskipti við yfirvöld í Króatíu, að fangelsi þar uppfylltu skilyrði um mannúðlegan aðbúnað. 

Bæði Landsréttur og Héraðsdómur Vesturlands féllust á málatilbúnað ríkissaksóknara og er ákvörðun embættisins frá 28. október 2026, um að fallast á beiðni króatískra yfirvalda um afhendingu fangans til Króatíu á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar, staðfest. 

Úrskurðina má lesa hér. 

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab