Milljónamáli flugmannafélagsins vísað frá
FÍA byggði á því að Mýflug hefði tekið við flugrekstri Ernis árið 2024 og þar með þeim skyldum sem leiddu af ráðningarsambandi Ernis við flugmenn sína. Krafan tók til vangoldinna gjalda í fjóra sjóði félagsins, þar á meðal sjúkra- og styrktarsjóð og orlofshúsasjóð. mbl.is/Golli
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá máli Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Mýflugi vegna um 4,3 milljóna króna kröfu um vangoldin gjöld vegna flugmanna Flugfélagsins Ernis.
Dómurinn taldi kröfuna ekki nægilega sundurliðaða til að unnt væri að leysa úr henni.
Úrskurðurinn var kveðinn upp 17. nóvember. Félagi íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, var gert að greiða Mýflugi 900 þúsund krónur í málskostnað.
Taldi greiðsluskylduna hafa færst til Mýflugs
FÍA byggði á því að Mýflug hefði tekið við flugrekstri Ernis árið 2024 og þar með þeim skyldum sem leiddu af ráðningarsambandi Ernis við flugmenn sína. Krafan tók til vangoldinna gjalda í fjóra sjóði félagsins, þar á meðal sjúkra- og styrktarsjóð og orlofshúsasjóð.
FÍA hafði áður samið við Erni um greiðslu skuldarinnar. Ernir greiddi 600 þúsund krónur inn á hana í júní 2024 en stóð að öðru leyti ekki við samkomulagið.
Mýflug hafnaði því að aðilaskipti hefðu orðið í skilningi laga um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum. Félagið kvaðst hafa ráðið fimm fyrrverandi flugmenn Ernis og samið við Vegagerðina um flug til Hafnar í Hornafirði, fyrst til bráðabirgða eftir að Ernir missti flugrekstrarleyfið og síðar í kjölfar opinbers útboðs. Ernir var tekinn til gjaldþrotaskipta í september 2024.
Gjöldin sundurliðuð eftir mánuðum
Í yfirliti FÍA kom fram heildarfjárhæð vangoldinna gjalda í hverjum mánuði. Af því varð hvorki ráðið hvaða tegund gjalda var um að ræða né til hvaða flugmanns hver greiðsla laut. Þá lagði félagið ekki fram skilagreinarnar sem það sagði kröfuna byggða á.
Dómurinn tók málið upp að nýju eftir aðalmeðferð til að gefa aðilum kost á að tjá sig um annmarkana. FÍA óskaði þá eftir að leggja fram ítarlegra yfirlit um iðgjöld flugmannanna. Dómurinn taldi að félagið hefði haft tilefni til að leggja gögnin fram fyrr og heimilaði ekki framlagningu þeirra á þessu stigi gegn mótmælum Mýflugs.
Dómurinn benti á að þegar aðilaskipti verða geti skyldur fyrri vinnuveitanda aðeins færst til hins nýja vegna ráðningarsambands sem er enn til staðar á þeim degi. Þar skipti máli að flugmennirnir fóru ólíkar leiðir. Fimm fóru á launaskrá Mýflugs 1. júní 2024, fjórir réðu sig til annarra starfa á mismunandi tímum og í tveimur samhliða málum var niðurstaðan sú að ráðningarsamband viðkomandi flugmanna hefði ekki færst til Mýflugs. Skortur á sundurliðun takmarkaði því meðal annars möguleika Mýflugs á að sannreyna útreikning kröfunnar.
Aðilaskipti talin hafa orðið í tengdu máli
Frávísunin fól í sér að héraðsdómur tók enga efnislega afstöðu til greiðsluskyldu Mýflugs.
mbl.is greindi fyrr í vikunni frá tengdu máli þar sem héraðsdómur taldi að aðilaskipti hefðu orðið að hluta starfsemi Ernis 1. júní 2024. Mýflug var sýknað af rúmlega 105 milljóna króna kröfu fyrrverandi flugmanns Ernis í því máli þar sem hann hafði ekki sýnt fram á að ráðningarsamband hans hefði færst til Mýflugs.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/59/48/1594870.jpg)