Þjóðaröryggi og ástandið á Alþingi
Pawel Bartoszek, Hildur Sverrisdóttir, Georg Kristinn Lárusson og Ragnar Axelsson eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum.
Landhelgisgæsla Íslands fagnar 100 ára afmæli um þessar mundir og verkefni stofnunarinnar hafa aldrei verið eins umfangsmikil. Georg Kr. Lárusson hefur verið forstjóri hennar í meira en tvo áratugi og hefur fylgt starfseminni eftir í gegnum gríðarlega breytingar, tæknilegar og þær sem tengjast umróti á alþjóðasviðinu.
Georg er gestur Stefáns Einars í Spursmálum í dag og fer yfir þær áskoranir sem stofnunin stendur frammi fyrir.
Þátturinn er öllum aðgengilegur í spilaranum hér að neðan og hefst innan skamms.
Samfélög og á hverfandi hveli
Þá ræðir Stefán Einar einnig við RAX, Ragnar Axelsson en hann hefur á umliðnum áratugum tekist á hendur það magnaða verkefni að ljósmynda samfélög á hverfanda hveli norðan heimskautsbaugs.
Á næstunni kemur út ný bók úr smiðju RAX en hún er prentuð í íslenskri og enskri útgáfu og fjallar öðrum þræði um grænlenska veiðimanninn Hjelmer Hammeken. RAX ræðir við Stefán Einar um bókina og ævistarfið sem fyrir löngu hefur vakið athygli milljóna manna um heim allan.
Er von á frekari vistaskiptum í þinginu?
Þá mun pólitíkin fá sinn verðuga sess í þættinum þegar Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar og Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins mæta til leiks. Það hefur allt leikið á reiðiskjálfi í þinginu frá því á mánudaginn þegar Ingvar Þóroddsson gekk úr þingliði Viðreisnar og til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.
Er von á frekari vistaskiptum eins og Guðrún Hafsteinsdóttir hefur ýjað að eða er þingflokkur Viðreisnar þéttari nú en nokkru sinni fyrr? Ljósi verður varpað á það í Spursmálum dagsins.
Fylgstu með fjölbreyttri og sneisafullri dagskrá í dag á mbl.is klukkan 14.00.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗