Áfall fyrir leikmann Arsenal

Martín Zubimendi, fyrir miðju, missir af næstu leikjum Arsenal.

Martín Zubimendi, fyrir miðju, missir af næstu leikjum Arsenal. AFP/Henry Nicholls

Spánverjinn Martin Zubimendi verður ekki með Englandsmeisturum Arsenal í fótbolta næstu vikurnar vegna meiðsla aftan í læri. 

Þetta tilkynnti stjórinn Mikel Arteta á blaðamannafundi í dag. 

Zubimendi meiddist í tapi heimsmeistara Spánar fyrir Englandi, 3:2, í Þjóðadeildinni síðastliðið sunnudagskvöld. 

Zubimendi hefur verið í litlu hlutverki hjá Arsenal á tímabilinu og ekki byrjað einn leik í ensku úrvalsdeildinni. 

Hann var þó lykilmaður hjá liðinu þegar það varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár á síðasta tímabili. 

Arsenal heimsækir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab