Mætti ekki í minningarathöfn dóttur sinnar
Lesley Vogel ásamt börnum sínum, Hayden og Jansen Panettiere, á viðburði í Hollywood árið 2019. Þau eru nú bæði látin. AFP/Amanda Edwards
Lesley Vogel ákvað að vera fjarri þegar fjölskylda og vinir komu saman í september til að minnast dóttur hennar, leikkonunnar Hayden Panettiere.
Vogel taldi að sumir gestanna litu á hana sem slæma móður vegna orða sem dóttir hennar hafði látið falla í reiði.
„Ég vildi heldur ekki valda neinu uppnámi. Þetta var líklega fyrir bestu,“ sagði Vogel í viðtali við bandaríska sjónvarpsþáttinn Inside Edition á dögunum.
Um 150 manns sóttu minningarathöfnina í Malibu í Kaliforníu 19. september.
Móðir og umboðsmaður
Vogel hefur áður sagt að þær mæðgur hafi fjarlægst hvor aðra síðasta árið sem Panettiere lifði. Það rekur hún til þess að dóttir hennar tók aftur saman við Brian Hickerson.
Panettiere fjallaði um samband þeirra mæðgna í endurminningum sínum, This Is Me: A Reckoning, sem komu út í maí.
Þar sagði hún að móður sinni hefði verið meira í mun að vera umboðsmaður hennar en móðir. Eftir að Panettiere sleit samstarfinu hefði Vogel sýnt lítinn áhuga á að þær héldu nánu sambandi.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/67/23/1672303.jpg)