Ætlar að brúa 16,5 milljarða bil án nýrra tekna
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir markmið ríkisstjórnarinnar um að skila hallalausum fjárlögum enn standa þrátt fyrir spá Seðlabanka Íslands.
Kristrún gaf sig á tal við blaðamann að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Seðlabankinn gerir ráð fyrir að hallarekstur ríkissjóðs nemi 16,5 milljörðum króna, samkvæmt ritinu Peningamálum sem kom út nú á dögunum.
Endanleg afgreiðsla snýr að því hvaða tillögur koma
Kristrún segir spá Seðlabankans miða við fjárlögin eins og ríkisstjórnin lagði þau fram í haust og síðan þá hafi efnahagshorfur breyst.
„Endanleg afgreiðsla fjárlaga snýr að því hvaða tillögur koma, meðal annars frá ákveðnum ráðuneytum í millitíðinni og líka frá ríkisstjórn og síðan Alþingi, fjárlaganefnd hefur þetta til meðferðar,“ segir hún í samtali við mbl.is.
„Þannig að við höfum sett það sem markmið að við ætlum að klára með jákvæðri afkomu,“ segir hún og bætir við að hún ætli ekki að fara í smáatriðin á útfærslu þess á þessum tímapunkti.
„En ég get alveg upplýst um það að það verður ekki um frekari tekjuráðstafanir að ræða. En þetta er ýmislegt sem fellur til og endurmat og svona tilfærslur sem getur átt sér stað á lokametrunum.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗