Kvörtuðu yfir grófri Njálumynd
Gunnar á Hlíðarenda vegur Egil Kolsson upp með atgeir sínum rétt áður en hann fleygir honum í Rangá.
Teikning af atviki úr Njáls sögu sem birt var í nýrri útgáfu af Íslandssögu Jónasar Jónssonar frá Hriflu árið 1966 þótti svo gróf að Kennarafélag Austurbæjarskólans kvartaði undan henni.
Guðni Ágústsson formaður Njálufélagsins, sem stendur fyrir Njáluþingi í Salnum í Kópavogi í dag milli 15 og 18, þar sem m.a. verður fjallað um atvikið, segir þetta ekki koma á óvart. „Nú skrifa tugir Íslendinga glæpasögur, skáldaðar upp úr sínu eigin höfði. En í Njálu höfum við alvörusögu þar sem framdir eru glæpir. Sagan er svo heillandi að hún var valin ein af hundrað bestu bókum heims árið 2000,“ segir Guðni í samtali við Morgunblaðið.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗