Á förum frá Liverpool

Kostas Tsimikas er á förum frá Liverpool.

Kostas Tsimikas er á förum frá Liverpool. AFP/Paul Ellis

Grikkinn Kostas Tsimikas yfirgefur enska knattspyrnufélagið Liverpool þegar samningur hans rennur út eftir yfirstandandi tímabil.

Sport24 í Grikklandi greinir frá en líklegast þykir að Tsimikas semji við félag í spænsku deildinni.

Tsimikas gekk í raðir Liverpool frá Olympiacos sumarið 2020 og hefur síðan leikið 124 leiki fyrir félagið en ekki enn skorað mark.

Hann lék þá að láni hjá Roma á síðustu leiktíð og hefur almennt verið varamaður.

Tsimikas varð Englandsmeistari með liðinu árið 2025.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab