Fordæmir „alvarleg brot“ á pólskri lofthelgi
Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, fordæmdi í dag „alvarleg brot“ á pólskri lofthelgi eftir að stjórnvöld í Varsjá greindu frá því að að minnsta kosti ein rússnesk eldflaug hefði lent í landinu, án þess að valda manntjóni.
„Herþotur NATO voru sendar á loft til að bregðast við. Við stöndum þétt við bakið á Póllandi og munum halda áfram að efla getu okkar til fælingar og varna. Þetta atvik er augljóslega hættulegt, afleiðing af yfirstandandi stríði Rússlands gegn Úkraínu,“ sagði Rutte í færslu á samfélagsmiðlum eftir að hafa rætt við Donald Tusk forsætisráðherra Póllands.
Tusk fordæmdi það sem hann kallaði rússneska „ögrun“ og sagði að hún gæti hafa tengst yfirstandandi heræfingum bandamanna Úkraínu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗