Á förum frá Liverpool
Grikkinn Kostas Tsimikas yfirgefur enska knattspyrnufélagið Liverpool þegar samningur hans rennur út eftir yfirstandandi tímabil.
Sport24 í Grikklandi greinir frá en líklegast þykir að Tsimikas semji við félag í spænsku deildinni.
Tsimikas gekk í raðir Liverpool frá Olympiacos sumarið 2020 og hefur síðan leikið 124 leiki fyrir félagið en ekki enn skorað mark.
Hann lék þá að láni hjá Roma á síðustu leiktíð og hefur almennt verið varamaður.
Tsimikas varð Englandsmeistari með liðinu árið 2025.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗