Mörg börn í sorg eftir áfallasumar fyrir austan

Benjamín segir að rík þörf hafi verið fyrir starfsemi Arnarins á Austurlandi. Samsett mynd

Fjöldi alvarlegra áfalla á Austurlandi á undanförnum árum varð til þess að ákveðið var að koma á fót sérstöku stuðningsstarfi fyrir börn sem misst hafa foreldra eða systkini.

Benjamín Hrafn Böðvarsson, sóknarprestur í Austfjarðaprestakalli, segir mikla þörf hafa verið fyrir úrræðið enda hafi mörg börn á svæðinu þurft að takast á við erfiðan missi. Starfið hafi skapað dýrmæt tengsl milli barna sem deila reynslu sem flestir jafnaldrar þeirra þekkja ekki.

Starf Arnarins, minningar- og styrktarsjóðs, hófst á Austurlandi haustið 2024. „Það varð svolítið mikið áfallasumar og á nokkurra ára skeiði urðu mörg áföll þar sem voru margir ungir syrgjendur,“ segir Benjamín í samtali við Morgunblaðið.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab