Stórleikur í átta liða úrslitum
Dregið var í átta liða úrslit fyrir bikarkeppni karla og kvenna í handbolta í Kringlunni í hádeginu.
Kvennamegin fá Íslands- og bikarmeistarar Vals topplið Hauka í heimsókn í stórleik átta liða úrslitanna.
ÍR og Selfoss mætast þá í Seljahverfi, Fram og KA/Þór mætast í Úlfarsárdalnum og Stjarnan og HK mætast í Garðabænum.
Leikið verður 2. og 3. febrúar kvennamegin.
Karlamegin mætast Afturelding og topplið og bikarmeistarar Hauka í Mosfellsbænum.
Víkingur tekur á móti FH í Safamýrinni, Þór fær ÍBV í heimsókn á Akureyri og Grótta og Valur mætast á Seltjarnarnesi.
Leikið verður 18. og 19. desember.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗