Nýtt verslunarform ryður sér til rúms
Samkvæmt tilkynningu frá Samkaupum verður lægsta verðið ávallt látið gilda. Ljósmynd/Þorvarður Árnason
Samkaup hafa hafið tilraunaverkefni í Nettó á Höfn í Hornafirði þar sem 500 vörur verða seldar á sama verði og í lágvöruverðsversluninni Prís. Um er að ræða nýtt verslunarfyrirkomulag sem nefnist PínuPrís og verður til skoðunar hvort það verði tekið upp í fleiri verslunum Nettó.
PínuPrís opnar í dag, föstudag, inni í Nettó-versluninni á Höfn. Vörurnar verða í sérmerktum Prís-hillum og eru meðal annars vinsælustu vörurnar úr lágvöruverðsversluninni Prís.
Samkvæmt tilkynningu frá Samkaupum verður lægsta verðið ávallt látið gilda. Fari vara á tilboð í Nettó og verðið verði lægra en í Prís mun verðið á Höfn lækka til samræmis.
Vilja prófa nýjar leiðir
Fyrirkomulagið er svokölluð búð í búð, eða „shop-in-shop“, sem er vel þekkt erlendis en nýjung á íslenskum dagvörumarkaði.
„Það þarf nýsköpun í verslun eins og í öðrum geirum. Verslun á Íslandi hefur hingað til tekið hægum breytingum og við viljum þora að prófa nýjar leiðir,“ er haft eftir Sigríði Hrefnu Hrafnkelsdóttur, framkvæmdastjóra Samkaupa.
Hún segir fyrirkomulagið skapa tækifæri til að laga verslunarrekstur betur að þörfum viðskiptavina á hverjum stað.
„Búð í búð gefur okkur tækifæri til að vera sveigjanlegri í rekstrinum og bregðast hraðar við því sem viðskiptavinir vilja á hverjum stað. Við viljum færa fólki um allt land meiri fjölbreytni í verslun og lægra verð.“
Gæti verið tekið upp víðar
Samkaup munu fylgjast með viðbrögðum viðskiptavina á Höfn og meta árangur verkefnisins jafnóðum. Á grundvelli þeirrar reynslu verður tekin ákvörðun um hvort PínuPrís verði innleitt í fleiri Nettó-verslunum.
„Höfn er fyrsta skrefið og við erum spennt að sjá hvert þetta leiðir okkur,“ segir Sigríður Hrefna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗