Prís opnar „búð í búð“ í Nettó á Höfn
Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. nóvember 2026 12:24
Nettó í Höfn. Mynd: Aðsend.
Samkaup fara nýja leið í verslun og fjölga valmöguleikum með opnun PínuPrís inni í verslun Nettó á Höfn.
Samkaup hefja tilraunaverkefni í Nettó á Höfn í Hornafirði. Í dag, föstudag, opnar PínuPrís inni í Nettó-versluninni, þar sem 500 vörur verða seldar á sama verði og í lágvöruverðsversluninni Prís. Vörurnar verða í sérmerktum Prís-hillum.
PínuPrís er svokölluð búð í búð, nýjung í íslenskri dagvöruverslun sem er vel þekkt erlendis undir heitinu „shop-in-shop“. Með því að sameina tvö verslunarform undir einu þaki opnast mörg tækifæri til að mæta óskum og þörfum viðskiptavina á hverju landssvæði fyrir sig, en þær eru ólíkar eftir stöðum.
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri Samkaupa.
„Það þarf nýsköpun í verslun eins og í öðrum geirum. Verslun á Íslandi hefur hingað til tekið hægum breytingum og við viljum þora að prófa nýjar leiðir,“ segir Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri Samkaupa. „Búð í búð gefur okkur tækifæri til að vera sveigjanlegri í rekstrinum og bregðast hraðar við því sem viðskiptavinir vilja á hverjum stað. Við viljum færa fólki um allt land meiri fjölbreytni í verslun og lægra verð. Höfn er fyrsta skrefið og við erum spennt að sjá hvert þetta leiðir okkur.“
Viðbrögð viðskiptavina metin
Um tilraunaverkefni er að ræða og er markmiðið að meta viðbrögð viðskiptavina við PínuPrís í Nettó á Höfn. Niðurstöðurnar verða metnar jafnóðum og fyrirkomulagið þróað áfram eftir því sem reynslan kennir. Í framhaldinu verður ákveðið hvort verkefnið verði tekið lengra, til dæmis í fleiri verslunum Nettó.
Prís-hillur. Mynd: Þorvarður Árnason
Vörur sem fólk kaupir í hverri viku
Vörurnar 500 eru valdar úr öllu vöruúrvalinu, þar á meðal mest seldu vörurnar úr Prís. Lægsta verðið gildir alltaf. Ef vara fer á tilboð í Nettó og verðið fer undir Prísverð lækkar verðið á Höfn til samræmis.
Nýja PínuPrís opnaði inni í Nettó á Höfn föstudaginn 20. nóvember.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗