Kompany snýr aftur eftir veikindi – „Þetta var mjög erfið lífsreynsla“

Vincent Kompany, knattspyrnustjóri Bayern München, er tilbúinn að snúa aftur á hliðarlínuna eftir að hafa verið lagður inn á sjúkrahús í síðasta mánuði.

Kompany, sem er fertugur, veiktist skyndilega þegar hann fylgdist með æfingu varaliðs Bayern. Í ljós kom að hann þjáðist af ertingu og bólgu í himnum sem umlykja heila og mænu.

„Þetta var mjög mikil lífsreynsla. Ég fékk strax frábæra aðstoð og er afar þakklátur. Ég fór í fjölmargar rannsóknir og allar komu þær vel út,“ sagði Kompany á blaðamannafundi.

„Ég er við mjög góða heilsu og ánægður að vera kominn aftur.“

Aðstoðarmaður hans, Aaron Danks, stýrði Bayern í fjarveru Kompany og vann fjóra leiki af fimm.

Bayern mætir Köln á föstudag en liðið er á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab