Landsréttur þyngdi dóm yfir Ion Panaghiu – Nauðgaði konu þrisvar þar sem hún lá sofandi
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 20. nóvember 2026 12:30
Landsréttur. Mynd: DV/KSJ
Landsréttur hefur þyngt refsingu yfir Ions Panaghiu fyrir nauðgun úr tveggja ára og sex mánaða fangelsi í tvö ár og níu mánuði. Var hann sakfelldur fyrir að hafa þrisvar haft samræði við konu án samþykkis hennar aðfaranótt annars dags jóla árið 2022. Konan var þá svo ölvuð og syfjuð að hún var ófær um að veita samþykki eða sporna við háttsemi hans.
Atvikið átti sér stað á gistiheimili í Kópavogi þar sem bæði Panaghiu og konan leigðu herbergi. Þau voru meðal gesta í jólaboði sem hófst um hádegisbil á jóladag og stóð fram eftir kvöldi. Mikið var drukkið og samkvæmt framburði vitna voru konurnar í hópnum orðnar mun ölvaðri en karlmennirnir.
Maðurinn hafði um nokkurt skeið sýnt konunni áhuga en hún hafði ítrekað gert honum ljóst að hún liti aðeins á hann sem vin. Í textaskilaboðum hafði hún meðal annars svarað yfirlýsingum hans um áhuga með því að hún vildi aðeins vera vinur hans.
Þegar parið sem einnig tók þátt í samkvæminu yfirgaf herbergi konunnar voru þau tvö ein eftir. Panaghiu hélt því fram að þau hefðu þá kysst og átt frumkvæði að kynlífi í sameiningu. Hann sagði að þau hefðu haft samfarir þrisvar sinnum með hléum á milli og að konan hefði tekið virkan þátt.
Konan mundi hins vegar lítið eftir kvöldinu. Hún lýsti því að hún hefði verið mjög ölvuð og síðasta minning hennar væri frá því hún ræddi við nágrannakonu sína. Hún vaknaði síðar um nóttina og uppgötvaði að maðurinn lá nakinn við hlið hennar. Hún brást við með því að vísa honum út úr herberginu.
Þegar hún vaknaði aftur um morguninn fann hún fyrir verkjum í kynfærum og tók eftir marblettum á líkama sínum. Hún hafði meðal annars mar á brjósti, handlegg og lærum. Hún leitaði til lögreglu og fór á neyðarmóttöku Landspítalans. Þar fundust sæðisfrumur í sýnum úr leggöngum hennar. Sæðisfrumur fundust einnig í nærbuxum Panaghiu.
Lögregla hafði tekið upp myndir úr eftirlitsmyndavélum gistiheimilisins. Þær upptökur glötuðust hins vegar vegna mistaka. Lögreglumaður sem hafði skoðað þær bar vitni um að Panaghiu hefði ítrekað reynt að snerta og faðma konuna um kvöldið en hún forðast hann. Eftir að hinir gestirnir fóru hefði Panaghiu verið sá eini sem fór inn og út úr herbergi hennar. Konan hefði ekki farið út úr herberginu um nóttina.
Dæmdur fyrir þrjár nauðganir
Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi Panaghiu fyrir eitt skipti en Landsréttur taldi sannað að samfarirnar hefðu verið þrisvar sinnum. Framburður mannsins sjálfs, bæði hjá lögreglu og fyrir dómi, studdi þá niðurstöðu.
Landsréttur taldi jafnframt ljóst að Panaghiu hefði vitað að konan væri ekki í ástandi til að veita samþykki sitt. Hann hefði áður fengið skýr skilaboð um að hún hefði ekki áhuga á kynferðislegu sambandi við hann.
Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til þess að Panaghiu hafði ekki áður brotið af sér hér á landi. Honum var einnig metinn til hagsbóta sá mikli dráttur sem varð á útgáfu ákæru, en 27 mánuðir liðu frá því að kæran barst lögreglu þar til ákæra var gefin út.
Hefur ekki jafnað sig af áfallinu
Konan hafði flutt aftur til heimalands síns eftir atvikið og leitað aðstoðar sálfræðings. Hún lýsti því fyrir Landsrétti að hún glímdi enn við martraðir, kvíða og ótta vegna þess sem gerðist.
Maðurinn þarf einnig að greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur. Þá greiðir hann tæplega 2,9 milljónir króna í áfrýjunarkostnað.
Dóma Landsréttar og héraðsdóms í málinu má lesa hér.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗