Okey dæmdur eftir tálbeituaðgerð á Hótel Fróni
Landsréttur staðfesti 19. nóvember dóm yfir Okey Emmanuel Ojidelu, sem hlaut í héraði 20 mánaða fangelsi fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots og peningaþvætti. Hann var sakfelldur fyrir að hafa ætlað að taka við tæplega einu kílói af kókaíni sem flutt hafði verið til Íslands frá Póllandi og fyrir að hafa haft undir höndum 1,74 milljónir króna sem taldar voru ágóði af refsiverðri starfsemi.
Málsatvik eru þau að 24. mars 2024 kom kona kom til landsins með flugi frá Varsjá. Við tollskoðun fundust í ferðatösku hennar tvær niðursuðudósir sem innihéldu samtals 994,57 grömm af kókaíni. Styrkleiki efnisins mældist 83 prósent.
Konan sagðist hafa verið að flytja matvæli fyrir vin sinn og féllst á að vinna með lögreglu við rannsókn málsins. Lögreglan fjarlægði kókaínið úr töskunni en skildi annað innihald eftir og tók yfir samskipti konunnar við mann sem skipulagt hafði ferðina.
Sett var upp tálbeituaðgerð á Hótel Fróni í Reykjavík. Þar átti konan að afhenda töskuna. Okey kom á hótelið, hitti konuna og tók við farangrinum. Þau föðmuðust samkvæmt framburði lögreglu og hélt hann síðan af stað með töskuna. Hann var handtekinn skömmu síðar.
Ótrúverðugar skýringar
Okey neitaði sök og hélt því fram að vinur sinn, sem hann hefði kynnst þegar þeir bjuggu á Ítalíu, hefði sent sér afrísk matvæli vegna þess að slíkur matur væri dýr og torfenginn á Íslandi. Hann hefði hins vegar átt að afhenda öðrum manni tvær eða þrjár dósir af tómötum sem voru í töskunni.
Landsréttur taldi skýringar hans afar ótrúverðugar. Framburður hans hefði verið mótsagnakenndur, meðal annars um hvort hann hefði áður hitt konuna sem afhenti honum töskuna. Hún bar að þau hefðu hist áður við sambærilegar afhendingar og að hún hefði ítrekað komið til Íslands að beiðni sama skipuleggjanda.
Við húsleit á heimili OKey fundust 1.740.000 krónur í reiðufé, lítil grammavog og fjöldi tómra niðursuðudósa. Einnig fundust nokkrir farsímar. Í einum þeirra voru skilaboð sem virtust tengjast fíkniefnaviðskiptum. Landsréttur taldi þó ekki sannað að Okey hefði átt eða notað þann síma og byggði því ekki sakfellingu á þeim samskiptum.
Mátti vita að fíkniefni voru í töskunni
Hann var engu að síður sakfelldur fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Taldi rétturinn að honum hefði verið ljóst að eitthvað annað og meira væri í töskunni en matvæli. Að minnsta kosti hefði hann látið sér í léttu rúmi liggja hvort þar væru fíkniefni og hvers kyns eða hversu mikið magn.
Varðandi peningana hélt Okey því fram að þeir væru sparnaður vegna svartrar vinnu við uppvask og byggingarstörf. Hann gat þó hvorki nafngreint veitingastaðinn þar sem hann sagðist hafa unnið né yfirmenn sína. Þá voru tekjur hans samkvæmt skattframtali í verulegu ósamræmi við fjárhæðina.
Landsréttur taldi útilokað að peningarnir væru fengnir með lögmætum hætti og staðfesti sakfellingu fyrir peningaþvætti.
Héraðsdómur Suðurlands hafði dæmt Okey í 20 mánaða fangelsi og gert upptækar 1,74 milljónir króna auk vaxta og verðbóta. Landsréttur staðfesti dóminn óbreyttan. Okey hafði ekki áður hlotið refsingu.
Dóma Landsréttar og héraðsdóms má lesa hér.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗