Vera ráðin framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
Vera Sveinbjörnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar og tekur hún við starfinu á næstu vikum að því er fram kemur í tilkynningu frá Fjölmiðlanefnd. Hún tekur við starfinu af Elfu Ýr Gísladóttur.
Vera hefur víðtæka reynslu af stjórnun, rekstri og opinberri stjórnsýslu, auk mikilvægrar sérþekkingar á ört þróandi áhrifum tækni á fjölmiðla og umhverfi þeirra.
„Um árabil hefur Vera fengist við lagaleg álitaefni á sviði fjarskipta, upplýsingatækni og netöryggis sem móta umgjörð fjölmiðlunar í nútímasamfélagi, auk þess sem hún hefur haft ríka aðkomu að stefnumótun og framkvæmd miðla- og upplýsingalæsis,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir að hún hafi fengist við lagaleg álitaefni á sviði fjarskipta, upplýsingatækni og netöryggis sem móta umgjörð fjölmiðlunar í nútímasamfélagi, auk þess sem hún hefur haft ríka aðkomu að stefnumótun og framkvæmd miðla- og upplýsingalæsis.
Vera hefur frá árinu 2022 gegnt starfi framkvæmdastjóra Myndstefs - Myndhöfundasamtaka Íslands, þar sem hún hefur borið ábyrgð á rekstri, fjármálum, lögfræðilegum verkefnum, samningagerð, sem og stefnumótun og starfsmannamálum. Hún hefur einnig haldið utan um úthlutanir og styrkveitingar samtakanna. Þá hefur hún jafnframt borið ábyrgð á upplýsingamiðlun, vefmálum og samfélagsmiðlum samtakanna.
15 umsóknir bárust
Áður starfaði Vera um 14 ára skeið sem lögfræðingur og teymisstjóri í Stjórnarráði Íslands, m.a. hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, einkum á sviði fjarskipta-, upplýsingatækni- og netöryggismála.
Alls bárust 15 umsóknir um starf framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar.
„Vera býr yfir fjölbreyttri reynslu og þekkingu sem mun nýtast Fjölmiðlanefnd vel á tímum örra breytinga í fjölmiðla- og upplýsingaumhverfinu. Stjórnin ber fullt traust til hennar og hlakkar til samstarfsins,“ er haft eftir Einari Huga Bjarnasyni, formanni stjórnar Fjölmiðlanefndar, í tilkynningunni.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗