Segir Aron Einar hafa neitað því að fara í viðtal við Sýn vegna fyrri skrifa fréttamannsins
Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. nóvember 2026 11:50
Aron Einar heiðraður fyrir leik. Mynd: DV/KSJ
Aron Einar Gunnarsson hafnaði því að mæta í viðtal við á Sýn Sport eftir síðasta landsleik sinn á dögunum.
Kristján Óli Sigurðsson greinir frá þessu í Þungavigtinni í dag. Það vakti athygli margra þegar Aron Einar fór ekki í viðtal í beinni útsendingu Sýnar eftir leik Íslands og Lúxemborgar á dögunum.
Miðað við þetta var það Aron Einar sjálfur sem neitaði að ræða við Val Pál Eiríksson á Sýn. Tengist það fyrri skrifum fréttamannsins.
„Ástæðan var að hann vildi ekki tala við þann sem var að taka viðtölin á Sýn. Menn sem eru búnir að skrifa um einhver mál í fortíðinni eru kannski ekki réttu mennirnir til að taka viðtal við hann eftir landsleiki,“ sagði Kristján Óli í Þungavigtinni.
Aron Einar hafði áður greint frá því á Instagram að hann hafi haft sínar ástæður fyrir að mæta ekki í viðtal í beinni útsendingu beint eftir leik. Það gerði hann í kjölfar þess að því var velt upp í þætti á Fótbolta.net hvort KSÍ hafi ekki viljað að hann færi í viðtal skömmu eftir leikslok.
Leikurinn við Lúxemborg var sá 113. og jafnframt síðasti landsleikur Arons fyrir Ísland. Hann er leikjahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi, en hann deilir metinu ásamt Birki Bjarnasyni.
Eins og flestir vita var Aron fyrirliði gullaldarliðs Íslands og leiddi það á bæði lokamót EM 2016 og HM 2018.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗